30.6.05

Grill og Duran

Kl.18 hjá mér í sveitinni í kvöld. Allir koma með sitt og með því með sér. Og í banastuði fyrir tónleikana. Best að mæta tímanlega þannig við verðum búin að grilla áður en bandið byrjar :-) Verð búina að hita grillið. Gott væri að fá að vita hverjir mæta.

Beggs

28.6.05

Elsku Herdís og fjölskylda

Ég vil votta ykkur mína dýpstu samúð varðandi andláts afa þíns og ykkar.
Megi Guð vera með ykkur.

Kveðja Nína og fjölsk.

27.6.05

Pallur, útileiga og saumó

Nú er pallurinn loksins tilbúinn. Jibbííí Það er enginn smá munur. Síðustu vikur hafa farið í að klára þennann pall og þá tekur mjög líklega eitthvað annað við eftir þennan áfanga. Þannig nú bíð ég bara eftir gestum á sólardögunum til að koma og njóta, vantar reyndar borð en nóg er til af allskonar stólum til að planta út. Búin að kaupa mér 2 svona þægilega til að liggja í í öllu góða veðrinu sem á eftir að koma í sumar ;-)
Ég var að spá í hvort fingurbjörgin hafi eitthvað hugsað sér að skella sér í útilegu á komandi helgum? Gætum jafnvel boðið köllunum og börnum með. Líst mjög vel á að fara að Fossatúni http://www.steinsnar.is/Default.asp?Sid_Id=15475&tId=1&Tre_Rod=&qsr en annars er mér alveg sama. Hvað finnst ykkur annars?
Nú fer að líða að saumó, ætlaði mér að halda hann í þessari viku en Sigríður K er að vinna svo mikið og fer í sumarfrí eftir þessa viku þannig ég ákvað að fresta fram í næstu. En þá fer Hafdís út þá vikuna þannig að þriðjudaginn eftir 2 vikur, hvernig leggst það í ykkur allar saman.
Fyrir ykkur sem ekki vita er ég hætt í vinnunni sökum mikil ofnæmis. Þar sem það fór svo hrikalega í skapið á mér, ákvað ég frekar að hætta og eyða sumrinu með sonum mínum í stað þess að enda í skilnaði :-) Þannig það er alltaf heitt á könnunni í sveitinni ( Ein mjög einmanna)

Bið að heilsa í bili
Beggs

24.6.05

Californiukveðjur

Hæ stelpur mínar.

Erum komin til Californiu og erum að reyna að koma okkur fyrir hér. Endilega kíkið á heimasíðuna mína, var að blogga og setja inn myndir.
Innilega til hamingju með afmælið aftur Herdís mín og takk kærlega fyrir myndirnar Berglind, rosalega eru strákarnir þínir sætir.

Hlakka til að heyra frá ykkur, knús frá mér, kv. Edda.

16.6.05

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag.....

Innilega til hamingju með daginn Herdís mín. Vona að þú hafir það sem allra best í dag.

7.6.05

Allt að gerast!

Gummi er kominn með nýja vinnu. Hann er að fara að vinna hjá Hörpu-Sjöfn við sölu-og ráðgjafastarf í sambandi við iðnaðarmálingu að mér skilst. Þetta er reyndar ný staða og á eftir að mótast með honum!
Svo fékk hann svar frá HR í dag, hann er sem sagt kominn inn í byggingariðnfræði sem að hann ætla að taka með vinnu!
Hann er voða lukkulegur með þetta allt saman og hefur því gefið mér útivistarleyfi á afmælisdaginn, ég mæti því í saumó. Við höldum bara upp á þetta allt saman um helgina! Hvað á ég annars að gefa honum, einhverjar uppástungur?
Ég ætla annars hér með að mæla með því að fyrsti fimmtudagur í hverjum mánuði sé saumókvöld, hvernig líst ykkur á það?

6.6.05

Aðþrengdar eiginkonuklúbbur

Saumó hjá Örnu á fimmtudag kl. 21:00 :-)
Fylgjast ekki allar með þáttunum? Við getum bara horft á hann hjá Örnu.

Málið leyst...
Bk
Begga

2.6.05

Sumarið er tíminn!

jæja þá er loksins komið sumar hér á íslandi, ég hef reyndar ekki getað notið þess sem skildi vegna þess að ég fór í en eina nebbaaðgerðina á föstudaginn. Það gekk bara vel en ég hef ekki hugsað mér að fara aftur í bráð! Það styttist í sumarfríið, ég ætla að byrja það með því skella mér á Duran Duran tónleikana, daginn eftir ætla ég hins vegar að skella mér til köben með mágkonu minni og krökkunum. Ég ætla að vera í rúma viku en þau verða aðeins lengur. Gummi á aðeins styttra sumarfrí en ég og fer jafnvel ekki í fríi í sumar(en það skýrist eftir helgi) svo að ég ætla bara að skella mér með þeim og hanga á róló í viku í köben.....skreppa til Arhus að heimsækja Tótu og co og kíkja í H&M auðvita.......
Gummi kláraði sveinsprófið í gær, prófsýning á morgun og þá kemur í ljós hvort að hann hafi náð sem ég hef nú reyndar mikla trú á! Hann ætla að halda partý við tækifæri í tilefni þess, meira um það síðar!
Ég er að skipta yfir á símann úr ogvodafone svo að það er eitthvað vesen á símanum mínum en Edda ég var að sjá skilaboðin frá þér. Ég er búin að lesa the lovely bones, á hana, keypti hana í Boston á sínum tíma...mér fannst hún mjög góð og er líka búin að lesa Lucy
Annars bara allt fínt að frétta, nattevakten kallar..........................................

Hæ allar

Takk fyrir kveðjuna Hafdís. Það var voða gaman í New York hjá Hildi, versluðum, borðuðum góðan mat og slöppuðum af. Er ekkert að frétta af ykkur öllum? Það hefur enginn skrifað svo lengi á þessa síðu okkar. Hvað ætlið þið allar að gera í sumar? Látið í ykkur heyra.

Bestu kveðjur til ykkar allra, Edda.