31.1.05

Mánudagurinn 31.janúar

Jæja þá er hann að verða búinn.. Búin að vera heima í dag, nema skrapp í tíma kl 1600 og er á leið heim núna..
Ég hef varla getað hugsað um annað en sorglegu fréttirnar sem bárust okkur í gær:( ég bið fyrir þeim, það er það eina sem ég get gert...
Maður verður að þakka mikið oftar fyrir það sem maður á og njóta þess betur!!! það er á hreinu!!
Skvísur mínar.. nú er bara að láta aðeins í sér heyra..
Ég bið að heilsa ykkur í bili og reynum að nota þessa síðu vel:)
bless í bili.. farin heim í hjúkkugallann að hjúkra syninum og sleikja sárin hans Ara... Skallagrímur tapaði í gær:(
over & out

30.1.05

Hvernig var þín helgi??

Sælar og blessaðar:)
Hvað hafiði verið að bralla þessa helgi?.. Við höfum gert voða lítið. Svavar Ingi er kominn með flensuna og eyrnabólgu sem ábót!! Við sem sagt kíktum á Læknavaktina í gær.. og Jeminnn ef maður verður ekki veikur á að sitja innan um veikt fólk í klukkutíma .. hvað þá? Ég er að segja það að biðstofa var full og við sátum þar í klukkutíma.. Geggjuð gleði.. Stubburinn fékk allavega lyf við eyrunum þannig að nú fer þetta að lagast:) sem fyrst vonandi ..
Nú svo átti amma Ragna afmæli í gær, og hélt upp það hjá okkur.. Við stórfjölskyldan komumst ekki fyrir heima hjá henni ásamt ömmu og afa.. Þannig að hér var veislumatur í gær *smack* *slefislef* og voða kósý kvöldstund með þeim :)
Dagurinn í dag fer svo í að læra.. og klára verkefnin fyrir morgundaginn...
ásamt því að hjúkra syninum og vona að við Lena sleppum..
Svo stelpur... fylgjast með í körfunni ... Ari er að spila í kvöld í Stykkishólmi... Áfram Skallagrímur...*klapp klapp*
Jæja .. over & out...

28.1.05

Kokkteilar

P.S. Mér fannst ekki annað hægt fyrir þennan klúbb en að velja teljara með kokkteilglasi ;-)

Lagfæringar á síðunni

Sælar Fingurbjargir. Ég er búin að vera að dunda mér við að setja ýmislegt inn á síðuna hjá okkur svo sem gestabók, teljara og linka. Gaman væri að heyra frá ykkur hvað ykkur finnst um þetta svo hægt sé að breyta ef einhver óánægja er. Einnig væri gott að fá frá ykkur urlið á heimasíður sem þið viljið að sé linkað á frá þessari síðu, ja svo getið þið sem kunnið á bloggið náttúrulega bara bætt því inn sjálfar ;-)

27.1.05

Dagskráin næstu mánuði :-)

Sælar sælar

Ógeðslega finnst mér við vera flottar á því! Ætla bara að minna á dagskránna hjá Fingurbjörginni næstu mánuði. Ég verð með saumó 14. feb. Svo ætlum við að skella okkur í baðstofuna á sunnudeginum 27.feb. Arna á mars. Ásdís á apríl o.s.frv. Ætlum svo að skella okkur í leikhús í byrjun apríl þannig að próf verða engin afsökun!!

Eitt að lokum fyrir frábært framtak: Begga er æði!!

Sigga K

Frábært framtak hjá þér Begga mín. Ég er náttúrulega algjör "pró" í þessu bloggi. Við getum bætt því við á to do-listann fyrir föstudagskvöldið. Er einmitt ekki svo langt síðan ég breytti um útlit á minni síðu. Verð að taka undir með Nínu, vinkonur í öllum heimshornum, verið nú duglegar að setja inn fréttir af ykkur.
Ég kveð ykkur þá í bili, Sigga Sig.

Flott hjá ykkur

Sælar stúlkur mínar..
Ég er mjög ánægð með þetta framtak ykkar:) nú get ég fengið að fylgjast með ....
Ég komst ómögulega í saumó til Siggu á þriðjudag...:(
Þetta er pínu erfiður tími núna þar til út febrúar... þar sem við erum í skóla til kl 18.30 alla dag nema föstudaga... það er því hálfgert að kapphlaup að elda, láta læra og þvo og sinna mömmuhlutverkinu áður en liðið fer að sofa..
En allt hefst þetta nú með góðra vina og vandamanna hjálp.. Ég mæli með að útlendingarnir okkar verði duglegir að setja inn punkta hingað inn ... það styttir vegalengdina á milli okkar..
Jæja bið að heilsa í bili ... Kv Nína

Nafnið Fingurbjörgin

Sælar aftur

Hef verið að fá fyrirspurnir með þetta fína nafn. En eins og sumar ykkar kannski muna þá héldum við matarklúbb fyrir ári síðan þar sem ónefndir leynigestir mættu. Kom þar í ljós að við vorum ekki búnar að nefna klúbbinn neinu fínu nafni. Einn af leynigestunum kom með þetta fína nafn sem mikið er búið að hlæja af. Ég ákvað að nota það þannig að ef einhver mótmæli eru þá endilega kommenterið.

Kveðja
Beggs

26.1.05

Sælar skvísur,
Ég ákvað að taka ykkur á orðinu og búa til þessa síðu okkar. Það versta er að ég kann ekkert á þetta og á örugglega eftir að eyða næstu dögum í að finna út hvernig þetta virkar allt saman og hvernig hægt er að breyta útlitinu á síðunni. Óska eftir leiðbeiningum frá fagmönnum!
Kveðja
Begga