30.8.06

Amsterdam aftur!!

Ég var að velta fyrir mér hvort það væri einhver möguleiki að svissa helgum? Það er vetrarfrí í skólanum akkúrat á þessum tíma og því erfitt að redda pössun.

Kv Beggs

27.8.06

Amsterdam!!

Beint úr boltanum í rauða hverfið, funny brownies og grolsch.... Ef mér telst rétt til þá er Amsterdam búin að vinna kosninguna þar sem hún hefur fengið 7 atkvæði og 11 manns hafa verið að lýsa áhuga sínum á þessari ferð. Er þá nokkuð annað að gera en að velja tíma og kaupa miða? Við erum búin að offa fyrstu helginni í febrúar svo þetta er spurning um 2., 3. eða 4. helgina. Til að fá ódýrasta fargjaldið er spurning um að fljúga út á fimmtudegi eða laugardegi og koma heim á sunnudegi eða þriðjudegi. Við þurfum sem sagt að ákveða hvaða helgi við förum og hvort við förum frá fimmtudegi-sunnudags, laugardegi-þriðjudags eða fimmtudegi-þriðjudags. Flogið er frá Keflavík kl. 7.50 og komið til Amsterdam kl. 11.50, svo frá Amsterdam kl. 13.20 og komið til Keflavíkur kl. 15.30 (allt að staðartíma, flugið sjálft tekur um 3 tíma). Endilega látið ljós ykkar skína um hvaða helgi er best og hvaða dagar svo við getum keypt miðana :D Svo að lokum segi ég bara áfram Ajax!!!

Fótboltaferð Saumó:-)

Liverpool- Everton 02.02.07, Liverpool-Sheffield United 24.02.07 og Liverpool- Man. utd 03.03.07. Miðjuleikurinn hljómar nú ekki svo spennandi en er kannski einmitt á þeim tíma sem að þið verslunarskvísur viljið fara á! En hey eru búðir ekki alveg hættar að vera eingöngu með útsölufatnað, ég kaupi mér aldrei neitt á útsölu, er alltaf komin í nýju fötin áður en að ég veit af :-) Annars er Gummi reyndar spenntastur fyrir Amsterdam (og rauðhverfinu). Mér er alveg sama nema við nennum ekki að fara til Berlínar, svo stutt síðan að við vorum þar! Kannski finnst ykkur ég vera með með óþarfa vesen að vera að blanda fótbolta inn í þetta en við höfðum nú alltaf stefnt á Anfield og það væri gaman að geta slegið tvær flugur í einu högg. Sérstaklega þar sem að við sjáum fram á fækkandi utanlandsferðir næstu ár;-) Þetta er alls ekkert heilagt og við komum með svo framalega sem að það verður ekki farið til Berlínar og Alicante:-)

25.8.06

Manchester England England!

Það þarf nú ekki mikið til að fá mig á flug, hvernig líst ykkur á fyrstu helgina í febrúar? Ég verð í "fríi" þá eða sko á að vera að vinna í lokaverkefninu. Manchester getur alveg verið hluti af því, ekki rétt? En svo í annarri stórborg stutt frá verður þessa helgi nágrannaslagur í fótbolta, Liverpool vs Everton sem að mig grunar að sumir hafi áhuga þ.e. Gummi og Stulli! Ég sé ekki betur en að flugleiðir fljúgi bara á föst og mán og er nú hægt að fá flugfarið á 19 þús kr í febrúar! :-)

24.8.06

Törnin búin!!!

Jæja þá er þessari klúðurslegu próftörn lokið. Eins og flestar ykkar vita þá ætlaði ég í þrjú próf. En mín skipulagði sig aðeins of illa og kannski bjartsýni að ætla sér í þessi þrjú að sumri til. En ég spái oft ekki í svona hluti, s.d þegar ég átti Marinó 1.des og ætlaði í öll 5 prófin hahahahah. Svolítið óraunsæ. Ég s.s byrjaði að fresta einu og frestaði svo hinu líka þannig ég endaði með að fara bara í eitt og búin að læra og læra undir öll. Alveg magnað! Prófið í morgun gekk vel sem betur fer. Hefði orðið frekar fúl ef það hefði svo klúðrast líka.
En um allt annað, ég fékk hugmynd í próflestrinum um febrúarferð :) Hvernig líst ykkur á Manchester? Ég gæti alveg hugsað mér að fara þangað. Annars væri gaman að fá hugmyndir frá öðrum líka, eða erum við kannski bara hætt við að fara???

Bkv Begga próflestur

11.8.06

Gengið var frá

kaupsamningnum í dag svo að ég labbaði út af fasteignasölunni með 2,7 mills! Þetta var sem sagt spurning um að fara beint upp á leifstöð eða í bankann.... ég var að spá í að gefa skít í allt og skella mér í heimsreisu en samviskan leyfði það ekki svo að ég dreif mig bara í bankann!

4.8.06

SAUMÓ

Jæja þá er komið að mér að halda saumó. Ég var að spá í fimmtudaginn í næstu viku, held það sé 11.ágúst. Gaman væri að fá að vita hverjar komast þá, og ekki komar saddar ég ætla að hafa SMÁ dinner. Mæting kl. 20.30
Hverjar komast og hverjar ekki.???