Manchester England England!
Það þarf nú ekki mikið til að fá mig á flug, hvernig líst ykkur á fyrstu helgina í febrúar? Ég verð í "fríi" þá eða sko á að vera að vinna í lokaverkefninu. Manchester getur alveg verið hluti af því, ekki rétt? En svo í annarri stórborg stutt frá verður þessa helgi nágrannaslagur í fótbolta, Liverpool vs Everton sem að mig grunar að sumir hafi áhuga þ.e. Gummi og Stulli! Ég sé ekki betur en að flugleiðir fljúgi bara á föst og mán og er nú hægt að fá flugfarið á 19 þús kr í febrúar! :-)

10 Comments:
Ég hef nú komið til Liverpool og get eiginlega ekki sagt að það sé stórborg. Frekar lítið þorp við hliðina á Stórmeistaraborginni Manchester :) Ég skil vel að Gumma langar að prófa að skíta þar. Enda líður manni alltaf vel í MANCHESTER og sérstaklega í návígi við stórmeistarana sjálfa. Ég get kannski tekið ykkur í sight seeing og sýnt ykkur húsakynni kappanna þar sem þeir bjuggu í næstu götu við mig :) Kristán er sammála Siggu með Berlin. Mér er alveg sama og örugglega hægt að tala kallinn til.
6:40 e.h.
Svo gætum við alltaf skellt okkur til Alecante í eina viku. Flugið aðra leiðina er á 7295 hjá Express....
12:47 e.h.
Ég er til í hvað sem er og hvert sem er en ekki hvenær sem er. Þó að þetta eigi kannski ekki að vera verslunarferð þá á ég nú pottþétt eftir að kíkja aðeins í búðir og ekki langar mig í restar af útsölu, væri meira til í að fara síðar í febrúar. Ég held svo að Gummi, Stulli og Hlynur Liverpoolmenn ættu að skella sér á Man Utd leik og sjá hvernig alvöru fótbolti er spilaður ;-)
2:57 e.h.
Við í Ólafsgeislanum erum líka alveg til í Amsterdam. Bara svona til að flækja málin aðeins meira. Hefur einhver komið þangað? Skemmtilegar second hand búðir fyrir þá sem finnst gaman að kíkja á svoleiðis. Það munar 6000 fyrir par á amsterdam og Manchester.
3:34 e.h.
Ég hef aldrei farið til Amsterdam en hefur alltaf langað til að fara. Mér finnst ekkert leiðinlegt að gramsa í svona second hand búllum. En mér finnst svo sem ekkert leiðinlegt að gramsa í "venjulegum" búðum heldur.....! Ég er svo sem ekkert á móti því að fara eitthvað annað en til Bretlands því ég hef verið þar soldið að undanförnu en auðvitað fylgi ég bara hópnum hvert sem farið verður. Bara gaman að vera saman.
5:30 e.h.
Manchester Amsterdam what ever, alveg sama til í hvað sem er samt eiginlega ekki alicante, fæ gumma aldrei þangað með mér! hvenær er farið er mér svo sem sama en mér finnst samt eiginlega mikilvægt að liverpool sé að spila heimaleik á sama tíma ef að við erum að fara til Man. Stakk bara upp á þessum tíma af því að þá er liverpool og everton að spila.. svo að ég leiðrétti allan misskilning þá er everton einmitt liðið hans Stulla :-)Byrja að lesa fyrir embættisprófið í byrjun apríl og svo tekur lokaverkefnið við, kemst ekkert frá 1 apríl til 24 maí.
6:20 e.h.
hæ hæ
Stulli Evertonmaður er til í Man. En hann er mjög spenntur fyrir þessum leik. Annarst líst mér líka vel á Amsterdam og Berlín, hef aldrei komið þangað. Febrúar er líka fínn tími að okkar mati. Ég er bara orðin spennt:-)
9:50 e.h.
ég vona að við getum verið með :)
Ari er einn sá heitasti Liverpoolmaður Íslands svo hann styður þá tillögu að fara til Liverpool :)
Hvernig var það, var til einhver aur?? .. man ekkert hvernig það var!
Ég hef komið til Amsterdam... og rölt í gegnum Rauða hverfið!!! .. það var frekar magnað, því okkur fjölskyldunni var boðinn fjölskylduafsláttur á einni búllunni ... Erum að tala um að það var ég, gústi bró, birna stjupsyst, pabbi og hrefna!
9:59 e.h.
Mér finnst að við ættum nú að skella okkur til Manchester og fara svo yfir til Liverpool á þennan stórleik Liverpool-Everton þar sem þetta virðist bara vera poolarar og everton "maður/menn" þessir menn okkar:-) Hvað með Kristján? er honum kannski alveg sama? Annars er Amsterdam líka heillandi, Stulli fer reyndar árlega þangað en finnst það frábær borg. Svo höfum við aldrei farið til Berlínar!
8:03 f.h.
Förum við ekki bara til Barcelona og horfum á Eið....... Annars er ég vel til í Amsterdam, komið þangað einu sinni. Einnig til í Berlín en ég hef aldrei komið þangað.
11:08 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home