Ég þoli ekki...
fólk sem keyrir alveg ofan í rassinum á bílnum mínum inn í íbúðarhverfi!!! Ég var í sakleysi mínu á leiðinni niður brekkuna í Grafarholtinu í morgun og kemur ekki bíll út frá Kristnibrautinni fyrir aftan mig. Það var einhver pía á svörtum Lexus greinilega orðin of sein því hún keyrði alveg upp við mig. Þetta er eitt sem ég þoli ekki þannig að púkinn kom upp í mér og ég ýtti létt á bremsuna til að láta vita að ég fílaði þetta ekki. En gellan bilaðist og flautaði og sendi mér puttann og allar græjur. Hún var fyrir aftan mig meirihluta leiðarinnar og ég var farin að halda að þetta væri einhver geðsjúklingur sem ætlaði að elta mig alla leið niður í skóla og berja mig :-) Nei nei þegar hún beygði út af gaf hún mér byssumerkið í hausinn. Flott pía!!! Vona bara að hún finni ekki út heimilisfangið mitt út frá bílnúmerinu og bíði mín með byssu þegar ég kem heim í dag.
Nóg um það, er mætt á hlöðuna í þessu blíðskaparverði til að reyna að koma einhverju í verk. Við erum svo á leiðinni vestur til Súðavíkur á morgun og ætlum að vera þar yfir helgina. Vona að veðrið verði svona. Loksins loksins sést í sólina segi ég nú bara.
Vona að þið njótið dagsins í góða veðrinu. Bið að heilsa í bili.
Beggs

2 Comments:
Ertu á lífi?
7:36 e.h.
Muhahahahah beið mín enginn þegar ég kom heim. Vona bara að það verði þannig áfram.
12:55 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home