29.6.06

Kaupsamningurinn

var gerður í dag svo að nú er ekki aftur snúið! Núna er bara að vona að íbúðin okkar seljist sem fyrst en við erum að fara að sýna hana í fyrsta skiptið í kvöld! Blönduhlíð 9 er á fyrstu hæð með sérinngangi, hún er 123 fm og öll mjög snyrtilega að innan. Gengið er út í garð af svölunum en í garðinum er nýr sólpallur sem er sameiginlegur með öðrum íbúum húsins. Húsið sjálf er í mjög góðu standi og eru 3 íbúðir í húsinu. Þau sem við erum að kaupa af eru ekki að fara langt, þau keyptu hæðina fyrir ofan......
Þá er bara að vona að það sjáist meiri sól næsta sumar þegar að við getum farið að spóka okkur á pallinum:-)

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Æðislegt, til hamingju. Hlakka til að koma á pallinn. Það er nú ekki langt fyrir mig að fara ;-)

11:57 f.h.

 
Blogger Maja pæja said...

Vá, hljómar vel :) Til hamingju með þetta :)

12:13 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home