21.5.06

California

Takk fyrir kveðjurnar! Við erum búin að hafa það frábærlega gott hérna hjá Eddu og Gumma. Ferðin gekk ofboðslega vel, flugið var 10 klst með millilendingu í Calgary. Game-Boy reddaði algjörlega málunum. Fyrsta daginn vorum við í rólegheitum, fórum í æðislegan garð í bænum hjá E&G og svo út að borða um kvöldið. Dag 2 fórum við inn í San Fran villtumst oft yfir daginn. Við keyrðum yfir Golden Gate, kíktum á sæljónin og aðeins á miðbæinn. Leiðin heim tók 2-3 klst í stað 1 klst. Við verðum flott á leiðinni niður til San Diego. Spurning hvort við munum komast :)
Í gær var svo verslunardagurinn mikli. Við fórum í huge outlet og örkuðum á milli búða allan daginn. Enduðum svo daginn með grilli og Strawberry Daquiry a la Edda, svaka gott. Í dag byrjuðum við daginn með amerískum pönnukökum og súkkulaðiköku í tilefni dagsins og erum svo á leiðinni í skoðunarferð um svæðið. Á morgun hefst svo ferðalagið niðureftir strandlengjunni og er fyrsta stoppustöð Carmel.
Biðjum að heilsa í bili
Beggs

4 Comments:

Blogger Sigríður said...

Hljómar allt vel, verður greinilega skemmtileg ferð hjá ykkur. Til hamingju með Atla og hafið það gott í Ameríkunni. Bið að heilsa öllum.

10:00 e.h.

 
Blogger herdist said...

Þetta verður æðislegt hjá ykkur fjölskyldunni, og til hamingju með Atla. Njótið ykkar.
Kveðja Herdís.

12:07 f.h.

 
Blogger herdist said...

Ég vona að þú hafir kosið Begga áður en þú fórst.....

9:55 e.h.

 
Blogger Begga said...

Síðasta sem ég og Kristján gerðum áður en við fórum út á völl ;-)

10:26 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home