Got a job!
Hæ hæ hæ .. Ég á nú til með að leyfa ykkur að heyra .. en ég er búin að fá vinnu :)
Framtíðarvinnu... á VSÓ Ráðgjöf..í lagna og loftræsihönnun. Ég er rosa ánægð .. byrja að vinna þar 12.júní!! nkl .. langt í það ... en svona er það þegar maður er að fara í útskriftarferð og sona;)
Ég fæ svo bara "frí" þegar ég fer í lokaverkefnið í haust... og svo bara keep on working!!..
Mér er svo ofsalega létt ... og hlakka ferlega til að byrja :)
Annars er allt það sama hér.. skóli, börn og skutl í íþróttir!!.. Svavar er byrjaður að æfa frjálsar og gengur það vel :) hann er orðinn svo miklu frábærari en áður:) þið vitið hvað ég meina.. en honum líður svo mikið betur að það hálfa væri hellingur. Lena er svo í fimleikunum og gengur það lika mjög vel ..
Orðin ofsalega liðug... algjör pæ;) ..
Bið að heilsa í bili .. Nína

4 Comments:
Til hamingju Nína, þetta er frábært hjá þér. Vona að það gangi jafnvel hjá mér að fá vinnu hehehe.
kv. Berglind
10:58 f.h.
Til hamingju Nína mín, rosa spennandi og ég trúi því að það sé mjög gott að vera búin að redda þessum málum...
Gott að gengur allt vel með grísina.
9:15 f.h.
Takk takk fyrir kveðjurnar:)
Já það er ólýsanleg tilfinning að vera búin að ganga frá þessum vinnumálum!.. Maður veit þá nokkurn veginn hvernig landið liggur :)
9:33 f.h.
Elsku Nína mín.
Innilega til hamingju með nýju vinnuna, já það er rosa gott að vera búin að redda þessum málum.
Gaman að heyra með krakkana þína, gott að allt gengur svona vel hjá ykkur.
Bestu kveðjur, Edda og co.
4:43 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home