Vatnsdeigsbollur fyrir Eddu
4dl vatn
4dl / 200g hveiti
160 g smörlíki
1/4 tsk. lyftiduft
5 egg
Vatn og smjörlíki hitað að suðu. Þurrefnunum blandað saman og bætt út í. Hrært hraustlega í öllu og látið kólna. Eggin sett út í, eitt og eitt í einu og hrært í á milli. Sett með matskeið á bökunarplötu. Bakað við 210 gráður í 30-35 mínútur.
Ég lét svo suðusúkkulaði á toppinn, sultu og rjóma á milli.
Mjög gott, verði ykkur að góðu.

1 Comments:
Takk kærlega fyrir Herdís mín. Við eigum eftir að eiga mjög góða bolluhelgi :-)
Kv. Edda.
1:29 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home