18.1.06

Laugardagurinn!

Þá hefst skipulagningin, ekki seinna en vænna. Hafdís og Gummi ætla að hafa þetta heima hjá sér sem er kannski lang þægilegast ef við ætlum að fara í bæinn. Styttra heldur en úr Grafarholtinu eða Hafnafirðinum ;-) Hvenær eigum við að mæta? Við vorum að velta fyrir okkur að kaupa mat frá Austu-Indíafélaginu, hefur einhver einhver mótmæli gagnvart því? Svo er bara spurningin hverjir ætla að mæta? Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar hérna á blogginu þannig hægt sé að áætla fjölda. Þetta verður örugglega mjög gaman. Ég er allavega spennt. Eru einhverjar tillögur um annað? Við getum kannski skipt með okkur að koma með snakk eða einhverjar eftirrétti og gos (eða ætla flestir að vera í búsinu :) )
Látið endilega í ykkur heyra

9 Comments:

Blogger Sigríður said...

Ég hef engin mótmæli. Er ekki ágætt að hafa bæði gos og bús á svæðinu? Ég skal koma með snakk/saltstangir og ídýfu.

11:25 f.h.

 
Blogger Nína said...

Við Ari mætum .. komum með okkar drykki sjálf:) Við munum því miður ekki getað stoppað lengi .. erum með barnaafmæli á sunnudag, fyrir yngsta afkomendann..

12:24 e.h.

 
Blogger herdist said...

við stulli mætum. með okkar drykki sjálf og líst vel á austur-india. bríet kemur með og heldur uppi stuðinu:-) eg skal koma með eitthvað í eftirrett.
sjáumst hress.
herdís og stulli.

5:21 e.h.

 
Blogger Edda said...

Hæ stelpur mínar.

Ég mæti auðvitað og með minn drykk sjálf. Mér líst ferlega vel á Austur-Indía, einn af mínum uppáhalds stöðum. Ég býst ekki við að fá mér eftirrétt en er samt alltaf til í saumaklúbbsdýfu þar sem ég hef ekki fengið hana síðan ég hitti ykkur í fyrra !!!

Hlakka ferlega til að hitta ykkur. Hvernig er með Siggu Karls. kemur hún? Ætlaði Stína ekki líka að koma?

Knús Edda.

8:30 e.h.

 
Blogger Begga said...

Sigga ætlaðir þú að koma með ídýfu með saltstöngunum? Ég get gert saumaklúbbsídýfuna þá og nachos með því. Annars bara eitthvað annað ...

12:11 f.h.

 
Blogger Sigríður said...

Já ég ætlaði að koma með svona snakk/salstanga ídýfu svo þú mátt koma með saumó ídýfuna ;-)

8:16 f.h.

 
Blogger Begga said...

Spurning um hvort einhverjum langi til að koma með osta :)

8:48 f.h.

 
Blogger Sigríður said...

Við Begga vorum að tala um að setja Hafdísi og Gumma í bann hvað varðar veitingar, þar sem þau eru að leggja fram húsnæði sitt er bara sanngjarnt að við hin komum með veitingarnar.

8:58 f.h.

 
Blogger Edda said...

Líst vel á þetta allt saman, látið mig vita ef ég get komið með e-ð.

Kv. Edda.

12:22 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home