Panta mat!
Jæja skvísur. Nú styttist óðfluga í laugardaginn og við þurfum að fara að huga að því hvað við ætlum að snæða. Hér er linkurinn á síðu Austur Indía http://www.austurindia.is/heim.html. Ég legg til að allir skoði matseðilinn og láti svo vita hvað þeim líst vel á því við þurfum svo að panta matinn á morgun, föstudag.

4 Comments:
Ég er sammála Ásdísi, finnst kjúllinn alltaf góður. Ég get ekki borðað sterkan rétt útaf brjóstastandi. Er ekki bara málið að panta sitt lítið að hvoru. Svo smakka allir af öllu?
6:37 e.h.
Hæ hæ og auðvitað mæti ég. Búið að vera brjálað að gera hjá mér, liggur við að ég fái sendann póstinn minn á slysó...en þetta fer allt að lagast.
Ég er til í að panta nokkra rétti saman, og allir smakka. Svo skal ég koma með osta til Hafdísar. Hlakka rosalega til að sjá ykkur....komin með meira en nóg af veikum og slösuðum og hvað þá samstarfsfólki mínu!
6:44 e.h.
Ég er sammála þeim hér að ofan. Er til í að panta nokkra rétti og smakka af nokkrum. Er til í hvað sem er svo það er bara spurning um að einhver bjóðist til að taka það að sér að panta. Ég er alveg jafnvíg á kjúkling og lamb svo ég borða bara það sem fyrir mig er lagt. Ég ætla að koma mér undan því að panta því ég er upptekin allan daginn á morgun.
7:16 e.h.
Ég er kjúklingamanneskja en er líka alveg til í lamb. Ég er líka til í að smakka fleiri en einn rétt en þarf að vita hvar hnetur og mango leynast því ekki vil ég enda kvöldið skyndilega :) Ég er alltaf mjög hrifin af Tikka masala (ekki viss hvernig það er skrifað).
Kv. Edda.
12:20 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home