Bollu-Sprengi-Ösku.
Jæja, var orðin leið á að fara inná síðuna okkar og aldrei neitt skemmtilegt að lesa, þannig að hér koma fréttir af okkur fjölskyldunni. Ég var mjög ánægð að fá Stulla heim á sunnudaginn eftir 4 daga grasekkju tíð. En Stulli skellti sér á tónleika til Köben um síðustu helgi.
Elsa Björg var með flensuna þannig að við vorum bara inni þessa daga, mjög skemmtilegt....
Ég bakaði svo 30 vatnsdeigsbollur á sunnudeginum og voru þær kláraðar á bolludaginn með góðri lyst. Við vorum alveg laus við saltkkjöt og baunasúpu á sprengidaginn enda ekkert sérlega gefin fyrir þann annars ágæta mat. Öskudagurinn byrjaði með trompi, Árni Snær stillti klukkuna á 7 og var maður ræstur við mikla tilhlökkun. Drengurinn var svo málaður svartur og hvítur í framan og hárið spreyjað svart. Svo skellti hann sér í svört föt og svartan plastpoka og þá var svarti karlinn klár. Svo skunduðu hann og 3 vinir hans niðrá Laugaveg og komu heim seinnipartinn ánægðir með daginn. Elsa Björg var kisa og var máluð eins og kisum einum er lagið, algjör dúlla. Bríet var bara prinsessa að vanda og eyddum við mæðgurnar deginum heima í ró og næði. jæja hvað er annars að frétta skvísur???

1 Comments:
Gaman ad heyra frettir af ykkur. Eg skal reyna ad baeta mig i theim efnunum :)
Gaetir thu kannski sent mer uppskriftina thina af vatnsdeigsbollunum.
Kv. Edda.
10:15 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home