Smá könnun.
Sæl öll. Ég er soldið að spá í að panta mér flutningabíl á laugardaginn klukkan 13.00. Langaði að vita hvort eitthvað af ykkur hefði áhuga að mæta þá í Geymslur sem eru staðsettar í Miðhrauni 4 í Garðabæ (við hliðina á Marel). Þið mættuð jafnvel koma svona 15-20 mínútum fyrr svo hægt væri að bera út úr geymslunni og út áður en bíllinn kæmi, þá ætti þetta að ganga hratt fyrir sig. Endilega commentið og látið vita hvort þið komist. Þeir sem eru duglegir fá einn kaldan í Mjóuhlíðinni ;-) Ég er nefninlega búin að kaupa mér nýjan ísskáp. Hlakka svo bara til að sjá ykkur á laugardaginn :D

3 Comments:
Sorry er að vinna:-( Kannski að einn kaldur freisti Gumma, lofa samt engu!
12:08 e.h.
Hæ Sigga mín.
Leiðinlegt að komast ekki og hjálpa til við flutninginn. En innilega til hamingju með nýju íbúdina. Hlakka til að sjá hana næst þegar ég kem til Íslands.
Gangi þér vel að flytja.
Kv. Edda.
5:52 f.h.
Ég er allavega búin að panta bíl klukkan 13.00 á laugardag. Ef þið sjáið ykkur fært um að mæta væri voða gott að sjá ykkur í geymslunni um 12.40. Annars óska ég ykkur bara góðrar helgar.
2:05 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home