10.5.06

Det er dejligt i Danmark

Jæja þá er sældin úti.... Við Bríet komum heim í gær þriðjudag eftir velheppnaða Köbenferð til Guðnýjar og Palla. Ýr vinkona fór einnig með sinn litla kút, hann Þórir. Börnin voru yndisleg og góð í alla staði, nema Þórir var orðinn svolítið þreyttur á búðarrápi og vera bundinn ofan í kerru, (bara ekta karlmaður). Annars var ekki hægt að kvarta undan þessum elskum.
Guðný og Palli tóku vel á móti okkur og stjönuðu við okkur allan tímann. Guðný sagði að þetta væri afslappaðasta heimsókn sem hún hefði fengið, enda vorum við Ýr ekkert að stressa okkur á búðarrápi of mikið. Við náðum samt að massa H&M og aðeins betur en það, hehehe
Við fengum dásamlegt veður sem var ekki verra þar sem við vorum að ferðast með kerrur, og gátum því setið úti og fengið okkur að snæða og drekka. Á kvöldin var því svo tekið rólega því litlu grísirnir sáu til þess að allir voru vaknaðir milli 7 og 8.
En það var gaman og gott að koma heim, hitta kallinn og rest af börnum og svo að sjá afrakstur helgarinnar, baðið mitt er orðið þrælflott, þökk sé Gumma....

2 Comments:

Blogger Sigríður said...

Gaman að heyra af vel heppnaðri ferð. Veit nú ekki alveg hvort ég á að trúa þessu með lítið búðarráp, hef nú alveg séð þig í ham ;-) (París, London.......)

9:02 f.h.

 
Blogger herdist said...

já einmitt, þurfti alveg að hemja mig, en það var ekki eins hægt að missa sig með lítið ungabarn í eftirdragi, hehehe. Annars var bara hlaðið á vagnana..... Svo var bara að taka á því þegar ferðast átti heim til Íslands, Úff.
ég held ég sé með vöðvabólgu eftir þetta allt saman, meira en að segja það að ferðast með kríli og allt sem því fylgir.

7:54 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home