Í fréttum er þetta helst
ég er núna að vinna á fæðingargangi og er á þremur vöktum búin að taka á móti 3 börnum! 2 stelpur og 1 strákur! Þetta er voða gaman enda hefur þetta allt gengið mjög vel hingað til. Er samt mjög spes að vaða í blóði, kúk og legvatni...en svona er náttúran og þetta valdi ég mér! Tölvugarmurinn minn gaf upp andann um daginn svo að ég fjárfesti í fyrstu fartölvunni, var búin að vera tölvulaus í rúmar 2 vikur og var ekki að fíla það. En núna er ég aftur orðin online og er búin að taka gleði mína á ný:-)
Er núna að bíða eftir kvöldmatnum en svo er það bara fæðingarvakt frá kl 20 til 8, vona bara að ég taki á móti fleiri börnum......

3 Comments:
Vá hljómar spennandi... hlýtur að vera geggjað :) og hvernig tölvu keyptirðu þér????
11:37 e.h.
hp bróður mínum til mikillar gleði eða þannig, IBM er það eina sem að vit er í að hans mati! Gummi var að kaupa tölvur fyrir nýja fyrirtækið og kippti einni handa mér, fengum þannig vaskinn af! ps er komin með 5 fæðingar:-)
12:43 f.h.
En gaman, 5 fæðingar, til hamingju. Já þetta er ekkert þrifalegt starf sem þú valdir þér Hafdís mín, (ein með reynslu, hehe) en örugglega mjög gefandi og spennandi. Gangi þér vel. Og til hamingju með nýju tölvuna:-)
9:24 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home