17.4.06

Gleðilega páska

Jæja þá er þessi hátið og þetta góða frí senn á enda. Við erum búin að hafa það mjög fínt um hátíðina. Skírdagur fór aðallega í það að slaka á og borða góðan mat ala Stulli. Á föstudaginn langa var lagt af stað uppí bústað til Svanhildar og Dedda (en þau leigðu bústað við Útlhlíð yfir helgina). Þar var mjög notalegt, mikið drukkið, borðað og masað. Stulli eldaði geggjaðan saltfisksrétt sem varð til þess að allt áfengi sem drukkið var um kvöldið hafði engin þunn áhrif á mannskapinn, algjör snilld.
Á laugardeginum var slakað á og tekinn lúr og ganga. Á leiðinni heim kíktum við svo á hinn kingimagnaða Gullfoss sem var mjög fallegur í öllu sínu veldi. Eftir stutt stopp á Selfossi eftir viðkomu í ÁTVR þar í bæ og Kaffi Krús var lagt af stað til Reykjavíkur. Hafdís og Gummi kíktu í heimsókn á laugardagkvöldinu og var gaman að sjá þau sætu hjón og spjalla um daginn og veðrið, (aðallega daginn samt, heheh).
Sunnudagur: páskadagur, Húsfreyjan vaknaði snemma sem endra nær og bakaði tvær dýrindis kökur fyrir skírn sem átti sér stað seinna um daginn. Elsa Björg og Stulli fóru í kirkju að vanda. Að sjálfsögðu nartaði ég (súkkulaðigrísinn) í páskaegg meðan á herlegheitunum stóð. Eitthvað held ég að viktin sýni of háar tölur eftir helgi...
Litli drengurinn Stínu og Gulla fékk s.s. nafn kl. 2 á páskadag. Hann heitir Jón Breki og er algjör dúlla.
Eftir kræsingar í safnaðarheimili Mosfellsbæjar hélt leiðin heim á leið að undirbúa páskalambið og taka aðeins til í kotinu því tengdó og Doddi litli (enn hann var einn heima) komu í mat til okkar. Svo seinna um kvöldið komu systur Stulla og makar + Jón Breki og var spilað Trivial fram á nótt. Það má taka það fram að ég, Stulli og tengdapabbi unnum spilið.
Nú er annar í páskum og ég og dætur mínar tvær vöknuðum kl.7 búið er að borða morgunmat og stefnan er að slaka bara á í dag og fara svo í matarboð til tengdó í kvöld.
Hvað segið þið hinar og hvernig voru páskarnir hjá ykkur.

6 Comments:

Blogger herdist said...

Daginn og veðrið hvað... Daginn og veginn átti þetta að vera.:-) Annars passar bara betur að segja daginn og veðrið hér á landi þar sem veðrið spilar svo stóran þátt í okkar samræðum dags daglega, eða hvað?

9:07 f.h.

 
Blogger Hafdís said...

ég var líka alveg daginn og veðrið! ég mundi nú ekkert sérstaklega eftir því að veðrið hafi verið rætt! Annars voru páskarnir einstaklega rólegir og fínir hjá okkur. Morgunkaffi sem drógst á langinn hjá gumma og tótu á skírdag, súpa og brauð hjá magga og þurí á föstudaginn langa og svo aftur hádegismatur hjá tengdó á páskadag, ég fór síðan að vinna á páskadagskvöld. leti í dag, nautalundir hjá sigga bró núna í kvöld

6:56 e.h.

 
Blogger Sigríður said...

Páskarnir voru æðislegir hjá mér. Fór til Bolungarvíkur til Gunnu frænku sem er by the way algjör lystakokkur svo þar var aðallega legið í góðum mat og drykkjum. Kom á fimmtudagskvöldi, á föstudag var svo auðvitað haldið í brekkurnar og aftur á laugardag en það var lokað í gær!! Á laugardag eftir brekkurnar fórum við svo á aldrei fór ég suður tónleikana á Ísafirði. Mjög gaman. Svo keyrðum við til baka í dag. Jæja, bið að heilsa ykkur í bili, SS.

8:45 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Mínir páskar voru nú afar stuttir eins og gengur og gerist hjá vaktavinnufólki. Vinna á skírdag, föstudaginn langa og annan í páskum en svona er þetta bara...... Átti annars fína daga, góður matur og gott vín í Safamýrinni eins og venjulega :-) Svo eru bara rúmar 2 vikur í sól og sumaryl og ástina mína :-)

10:34 e.h.

 
Blogger Sigga said...

..... en svona úr einu í annað. Hvenær er næsti saumó???

10:58 e.h.

 
Blogger herdist said...

Er það ekki Nína? annars er ég ekki með þetta á hreinu.

12:55 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home