Enn fleiri fréttir þessa vikuna......
Haldið þið ekki að mér hafi dottið í hug að setja íbúðina á sölu á föstudaginn, enda varla hægt að búa þrír í litlu holunni minni. Hélt að þetta mundi taka marga mánuði, en viti menn það kom tilboð í hana á þriðjudag. Og núna er sem sagt búið að skrifa undir kauptilboð, fékk uppsett verð sem ég get ekki verið annað en ánægð með, stelpan á reyndar eftir að fá greiðslumatið......en vonandi gengur það í gegn. Við verðum sem sagt á götunni 1.okt en þá er afhending. Við erum ekki búin að finna neitt sjálf, en erum að vonast til að Guðjón bróðir selji sína svo við getum keypt hana. Hún passar okkur nefnilega svo vel :-) En já sem sagt margt að gerast þessa vikuna.....
Kveðjur
Sigga K :-)

2 Comments:
Til hamingju með það, engar áhyggjur sigga mín, ég á tvær íbúðir, ekki jafn heppin og þú með söluna þannig að þú ferð ekkert á götuna;-)
11:25 e.h.
Til hamingju með söluna Sigga mín.
5:47 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home