Vinna vinna!!!
Jæja nú er það alveg komið á hreint. Ég fékk staðfestingu á vinnunni og launatilboð í dag. Ég byrja s.s hjá KPMG 1.sept. Ég er komin með alvöru fullorðinsvinnu. Svolítið skrítin tilfinning en mjög spennandi. Annars er maður núna að reyna að koma sér í lærdómsgírinn, verð að klára þennan skóla í ágúst. Fékk próftöfluna fyrir helgi og lítur hún bara nokkuð vel út. Það er bara alltaf erfitt að læra á sumrin. Kannski ekki í þessu góða veðri, það vinnur með manni :) Bið að heilsa í bili. Beggs

2 Comments:
Til hamingju með þetta. Æðislegt að heyra. Já já, nú erum við bara að verða fullorðnar :p
6:29 e.h.
Frábært Begga mín. Innilega til hamingju með nýju vinnuna. Allir að verða fullorðnir :-)
Gangi þér rosalega vel í sumarlestrinum og prófunum í haust.
Knús og kossar, Edda.
12:51 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home