24.8.06

Törnin búin!!!

Jæja þá er þessari klúðurslegu próftörn lokið. Eins og flestar ykkar vita þá ætlaði ég í þrjú próf. En mín skipulagði sig aðeins of illa og kannski bjartsýni að ætla sér í þessi þrjú að sumri til. En ég spái oft ekki í svona hluti, s.d þegar ég átti Marinó 1.des og ætlaði í öll 5 prófin hahahahah. Svolítið óraunsæ. Ég s.s byrjaði að fresta einu og frestaði svo hinu líka þannig ég endaði með að fara bara í eitt og búin að læra og læra undir öll. Alveg magnað! Prófið í morgun gekk vel sem betur fer. Hefði orðið frekar fúl ef það hefði svo klúðrast líka.
En um allt annað, ég fékk hugmynd í próflestrinum um febrúarferð :) Hvernig líst ykkur á Manchester? Ég gæti alveg hugsað mér að fara þangað. Annars væri gaman að fá hugmyndir frá öðrum líka, eða erum við kannski bara hætt við að fara???

Bkv Begga próflestur

4 Comments:

Blogger Sigríður said...

Til hamingju með próflokin ;-) Ég er til í hvað sem er, ég er alls ekki hætt við.

9:21 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

I´m inn, Gummi segist reyndar ekki fara til manchester nema til að skíta, það er í fínu lagi mín vegna, hann má alveg gera það!

11:01 e.h.

 
Blogger herdist said...

Við Stulli erum til í nánast hvað sem er (ég tala fyrir hönd Stulla, hehe) En verðum með augun opin fyrir góðum borgarferðum í feb.
og til hamingju Berglind að vera loksins búin með þessa próftörn, þú ert svaka dugleg finnst mér.
kv. Herdís.

10:03 f.h.

 
Blogger Sigríður said...

En hvað með Berlín? Fannst Gumma gott að skíta þar?

1:06 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home