Amsterdam!!
Beint úr boltanum í rauða hverfið, funny brownies og grolsch.... Ef mér telst rétt til þá er Amsterdam búin að vinna kosninguna þar sem hún hefur fengið 7 atkvæði og 11 manns hafa verið að lýsa áhuga sínum á þessari ferð. Er þá nokkuð annað að gera en að velja tíma og kaupa miða? Við erum búin að offa fyrstu helginni í febrúar svo þetta er spurning um 2., 3. eða 4. helgina. Til að fá ódýrasta fargjaldið er spurning um að fljúga út á fimmtudegi eða laugardegi og koma heim á sunnudegi eða þriðjudegi. Við þurfum sem sagt að ákveða hvaða helgi við förum og hvort við förum frá fimmtudegi-sunnudags, laugardegi-þriðjudags eða fimmtudegi-þriðjudags. Flogið er frá Keflavík kl. 7.50 og komið til Amsterdam kl. 11.50, svo frá Amsterdam kl. 13.20 og komið til Keflavíkur kl. 15.30 (allt að staðartíma, flugið sjálft tekur um 3 tíma). Endilega látið ljós ykkar skína um hvaða helgi er best og hvaða dagar svo við getum keypt miðana :D Svo að lokum segi ég bara áfram Ajax!!!

5 Comments:
okkur líst best á fim til sun! alveg sama hvaða helgi sýnist mér, 4 helgin kemur ágætlega út vísalega séð;-)22 feb til 25 feb.
4:44 e.h.
Ég er líka sátt við 4. helgina í febrúar. Góður punktur með vísatímabilið ;-) Þá ætti líka að vera öruggt að nýju fötin verða komin í búðirnar. Ég er sammála að fara frekar út á fimmtudegi en ég væri reyndar til í að vera alveg fram á þriðjudag.
8:24 e.h.
Hæ hæ
Okkur Stulla líst ljómandi vel á Amasterdam og 4.helgin í febrúar er í góðu lagi. Stulli hefur komið nokkrum sinnum til Amsterdam og mælir með þessu hóteli http://www.hotelpiethein.nl/
kíkið á það, ódýrt og snyrtilegt og á góðum stað.
9:46 e.h.
Er ekki betra að fara á fimmtudegi og koma heim á sunnudegi? Á laugardegi eru markaðir.! Ég slá inn fimmtudeginum 22.feb og heim 25.feb á icelandair og það kostar 62160 kr fyrir par út núna í dag.
9:57 e.h.
Vá allt að gerast... mig langar að vera í þessum vinahóp :)
12:02 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home