27.8.06

Fótboltaferð Saumó:-)

Liverpool- Everton 02.02.07, Liverpool-Sheffield United 24.02.07 og Liverpool- Man. utd 03.03.07. Miðjuleikurinn hljómar nú ekki svo spennandi en er kannski einmitt á þeim tíma sem að þið verslunarskvísur viljið fara á! En hey eru búðir ekki alveg hættar að vera eingöngu með útsölufatnað, ég kaupi mér aldrei neitt á útsölu, er alltaf komin í nýju fötin áður en að ég veit af :-) Annars er Gummi reyndar spenntastur fyrir Amsterdam (og rauðhverfinu). Mér er alveg sama nema við nennum ekki að fara til Berlínar, svo stutt síðan að við vorum þar! Kannski finnst ykkur ég vera með með óþarfa vesen að vera að blanda fótbolta inn í þetta en við höfðum nú alltaf stefnt á Anfield og það væri gaman að geta slegið tvær flugur í einu högg. Sérstaklega þar sem að við sjáum fram á fækkandi utanlandsferðir næstu ár;-) Þetta er alls ekkert heilagt og við komum með svo framalega sem að það verður ekki farið til Berlínar og Alicante:-)

4 Comments:

Blogger Sigríður said...

Er ekki bara spurning um að hafa atkvæðagreiðslu og drífa sig svo í að panta miða? Amsterdam fær mitt atkvæði. (Erum við ekki annars komin niður á það að þetta verður Amsterdam eða Manchester?)

11:57 f.h.

 
Blogger Begga said...

Við erum miklu spenntari fyrir Amsterdam eftir að það kom upp á pallborðið. Mun skemmtilegri borg í alla staði en Mansó. Er ekki hægt að fara bara í sér fótboltaferð? Það er kannski erfitt að finna leik sem öllum langar á.

12:33 e.h.

 
Blogger Hafdís said...

Jú ég mæli með því:-) Ekkert vesen, reyni að láta gumma vita sem minnst af þessum pælingum okkar, hann verður alveg hneikslaður á okkur Sagði við mig í gær; "þið verðið búnar að fara í nokkra hringi með þetta áður en að þið ákveðið ykkur.." ég segi nú bara só! ég segi þá bara Amsterdam:-)

12:38 e.h.

 
Blogger Sigga said...

Amsterdam fær okkar atkvæði.

1:34 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home