30.11.06

Dagsetningar

Við komum þann 19. des. og förum aftur þann 5. jan. Nokkrum dögum áður en við komum til Íslands þá ætlum að fara til Nönnu vinkonu í Boston og vera hjá þeim í nokkra daga. Hlakka mikið til þess þar sem við höfum ekki hist í 1 1/2 ár. Síðan kem ég til ykkar.

Hlakka mikið til, kv. Edda.

29.11.06

Allir á Íslandi um jólin

Hæ stelpur.

Við erum á leiðinni til Íslands um jólin, jibbííí. Ég hlakka ekkert smá til. Hlakka rosalega mikið til að hitta ykkur allar og ég bað Berglindi um að plana hittinga. Stelpurnar mínar verða í góðu yfirlæti hjá ömmum sínum, öfum, frænkum og frændum svo það væri frábært ef þið hafið tíma fyrir mig, MIKINN :-)
Látið mig vita svo við getum planað. Þar sem að Gummi kemur ekki til Íslands fyrr en morguninn 24. þá leita ég hér með að fólki til að fara með mér niður í bæ á Þorláksmessu. Það hef ég ekki gert í meira en 4 ár, svo endilega látið mig vita.

Hildur er líka á leiðinni til Íslands og þar sem Auður er flutt til landsins þá er þetta í fyrsta skipti í mörg ár sem við erum allar á landinu :-)

Hlakka ferlega mikið til að sjá ykkur allar.

Knús og kossar, Edda.

23.11.06

Hótel Amsterdam!!

Sælar dömur.
Eru ekki allir sem ætla til Amsterdam búnir að kaupa sér miða? Er þá eftir nokkru að bíða að fara að leita að hóteli? Er einhver sem býður sig fram í að vafra um síður netsins og finna eitthvað sniðugt? Ég ætla að koma mér undan því sökum þess að ég er að vinna í lokaverkefninu!! En ég veit að það eru nokkrir snillingar í því að þefa svona lagað uppi (t.d. Begga og Hafdís) en vil ekki vera að nefna neina sérstaka...... Endilega látið í ykkur heyra ef þið dettið inn á eitthvað sniðugt. Bið að heilsa í bili.

13.11.06

Hildur Sif og Ásta Lovísa

Stelpur... smá áminning um hvað við flestar höfum það ofboðslega gott.
Hér eru tvær konur á sama aldri og við og eru vægast sagt að berjast fyrir lífi sínu...
Kveikjum á kerti... fyrir þær:) og biðjum fyrir þeim
og þökkum fyrir hvað við erum ríkar !

Ásta er kona sem við flest höfum heyrt af undanfarna daga. Hún berst við krabbamein sem sumir vilja meina að sé banvænt en við trúum því ekki. Með alla þá jákvæðni og útgeislun sem þessi fallega kona hefur, þá má krabbinn sko vara sig!!

Ásta er vinkona Hildar Sifjar, sem hefur verið með mér í Tækniskólanum, Tækniháskólanum og nú síðast í Háskólanum í Reykjavik! en Hildur berst líka við krabbamein og hefur staðið í þeirri baráttu í 3 ár!

Báðar þessar hetjur eru um þrítugt og eiga nokkur börn..

Mig langar að benda fólki á þessar fallegu síður hér og kveikja á kertum þar þeim til heiðurs (það er gert með því að smella á kerti sem er ekki tendrað):

http://www.gratefulness.org/candles/candles.cfm?l=eng&gi=HSH Síða Hildar

http://www.gratefulness.org/candles/candles.cfm?l=eng&gi=%C3%81sta Síða Ástu

Ég ætla að láta fylgja heimasíður þessara hetja: þar er hægt að lesa um baráttu þeirra...

Hildur Sif : http://hildursif.blog.is/blog/hildursif/

Ásta Lovísa : http://www.123.is/crazyfroggy/

Munum svo að þakka fyrir það sem við höfum! .. Gerum aldrei of mikið af þvi!

9.11.06

Smá breyting......

Hvað segið þið um að flýta saumaklúbbnum til þriðjudagsins 14.nóv?

Kveðja,
Sigga K