Hótel Amsterdam!!
Sælar dömur.
Eru ekki allir sem ætla til Amsterdam búnir að kaupa sér miða? Er þá eftir nokkru að bíða að fara að leita að hóteli? Er einhver sem býður sig fram í að vafra um síður netsins og finna eitthvað sniðugt? Ég ætla að koma mér undan því sökum þess að ég er að vinna í lokaverkefninu!! En ég veit að það eru nokkrir snillingar í því að þefa svona lagað uppi (t.d. Begga og Hafdís) en vil ekki vera að nefna neina sérstaka...... Endilega látið í ykkur heyra ef þið dettið inn á eitthvað sniðugt. Bið að heilsa í bili.

3 Comments:
stelpur mínar, hvað viljið þið 2 stjörnu, 3 stjörnu, 4 stjörnun ? Ég er búin að vera að skoða þetta, mér sýnist við geta fengið ágætt hótel fyrir um 30 þús á par, þá 3 stjörnu. Annars líst mér vel á eitt sem er 4 stjörnu en það er um 40 þús á par en ég veit reyndar ekki alveg hvort að það sé á góðum stað
2:38 e.h.
Svo lengi sem það er ekki rottugangur eða lýs í rúmunum þá er ég sátt ;-) Og já, svo er náttúrulega gott að það sé vel staðsett svo maður sé ekki að eyða of miklum tíma í samgöngur.
5:40 e.h.
vá ég er alveg dofin... eru s.s. allir búnir að kaupa sér far. 1.-4.mars? best að ath málið.
12:37 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home