26.10.05

Vorkenni mér!

Hjálp ég er að kafna! Hef aldrei lent í eins miklu álagi í skólanum fyrr og þetta er loka árið. Finnst að þetta ætti að vera þægilegasta en.... Á að skila 3 verkefnum og 1 próf í næstu viku. Langar helst að stökkva upp í flugvél og fljúga í sól og hita, gleyma öllu sem er eitthvað álag. Er einhver til? Ég s.s ætla ekki að mæta í saumó annað kvöld. Hef ekki samviskubit gagnvart fjölskyldunni. Eyði öllum kvöldum upp í skóla þannig mér finnst að auka tíminn sem ég fæ verður að vera með fjölskyldunni. Maður vonar bara að þetta gangi upp. Annars er ég bara orðin spennt að fara á Woyzeck.
Jæja nú ætla ég að fara að fylgjast með í tímanum mínum og læra eitthvað um hlutabréfamarkaðinn og uppbyggingu hans. Hvort maður eigi að selja eða kaupa þessa stundina :-)

25.10.05

Afmælisóskir

Mig langar að senda henni nöfnu minni afmælisóskir á afmælisdaginn. Einnig vil ég senda Auði sem átti afmæli fyrir 3 dögum afmælisóskir. Til hamingju stelpur og velkomnar í ellismella hópinn ;-)

21.10.05

Saumó

Það verður sem sagt saumó hjá mér fimmtudaginn 27.okt kl.21
Vonandi komast sem flestar, sjáumst hressar.
Góða helgi.

20.10.05

"Forðist okkur"

Í gær fórum við Stulli ásamt Berglindi, Kristjáni og Ásdísi í Borgarleikhúsið. Við fórum að sjá stikki nemendaleikhúsins "Forðist okkur" og var það vægast sagt alveg frábær sýning. Mæli með því að þið drífið ykkur, snilldarleikur hjá okkar framtíðar leikurum.
Annars er næst stefnan tekin á "Woyseck" þann 10. nóv þannig að saumaklúbburinn "Fingurbjörgin" er að verða ansi menningarlegur.

19.10.05

Woyzeck 10.nóv

hæ hæ

Mér sýnist 10.nóv verða dagsetningin. Er ekki rétt hjá mér að það séu:
Herdís og Stulli
Hafdís og Gummi
Sigga Karls
Sigga Sig
Asdís
Berglind og Kristján
Nína og Ari?

Látið vita sem fyrst þannig það sé hægt að panta miða

18.10.05

Woyzeck!

Hver hefur áhuga á og kemst með okkur hjónaleysum á sýninguna þann 5. nóv? Það er laugardagur svo er líka sýning föstudaginn 11.nóv. Við erum að fara í jólahlaðborð þann 19. þannig að við komumst ekki þá.

Endilega látið í ykkur heyra sem fyrst.

11.10.05

Hildur

fór í dag og þakka ég henni kærlega fyrir samveruna. Megnið af saumó mætti í útskriftarveisluna hennar og var það mjög gaman. Malla og Helgi voru að springa af stolti og voru dugleg að fylla á glösin okkar:-) Við vinkonurnar sátum eftir með fjölskyldunni í góðu yfirlæti fram eftir kvöldi en færum okkur svo yfir í eskihlíðina í meira stuð. Hildur, Sigga, Ásdís og ég fórum svo á Rex og tókum nokkur góð dansspor þar, færðum okkur yfir á 22 en skildum Ásdísi eftir.....................Við drífum okkur heim um kl 4 eftir skemmtilegt kvöld. Ég vaknaði svo furðu hress daginn eftir til að fara í vinnu!
Annars allt á fullu, ég er búin með einn áfanga í skólanum, að reyna að klára annann og byrjuð á þriðja. Það sem vantar af þessum númer tvö er ritgerð ein sem ég þarf að klára, þá er ekki gott að vera með ritstíflu og athyglisbrest á háu stigi! Svo er London á fimmtudaginn...guð minn góður, ég hef engan tíma í þetta....................

5.10.05

Kaffihús

á morgun? einhver til? annars takk fyrir síðast;-)

4.10.05

veitingar


Hafdís kemur með Osta, salat og með því
Ásdís kemur með döðludraum
Nína kemur með m.g brauðrétt
Berglind kemur með rúllubrauð
Sigga kemur með ?
Herdís kemur með ?


Ég á nóg af kaffi, hvað með gos? Vantar eitthvað fleira? Viljið þið bjóða líka upp á rautt?


Nú er um að gera að ákveða því stóri viðburðurinn er í kvöld, ekki seinna en vænna.

partý .. aflýst!! ;(

Ég verð því miður að tilkynna það að fyrirhugað málningarpartý, hefur verið aflýst!

Ástæðan er .. jú nokkrar.


1. Ari er að keppa á föstudagskvöld

2.3.4.5 veggirnir eru ekki reddy!!

ég mun auglýsa málningarpartýið betur þegar ég sé fram á að það verði hægt!

kv.Nína ....