21.4.05

Gleðilegt sumar.

Gleðilegt sumar elskurnar mínar:)

Hafið það sem allra best... og skemmtið ykkur vel í dag..
Ég verð á bólakafi í lestri .. og vinnu þannig að ég mun því miður ekkert rekast á ykkur í dag..

Sumarkveðja úr Stóragerðinu.

17.4.05

Ungfrú Ísland

Er eitthvað sem mig hefur aldrei dreymt um að vera... Fallega fólkið segir að það sé bara öfund í okkur hinum sem fá ekki að vera með sem segja svona... Mér leið alltaf kjánalega þegar að gamlar frænkur sögðu við mig þegar að ég var lítil; "kannski verður þú einhverntímann fegurðardrottning" Ég bara vissi það mjög snema að mig vantaði ansi margt til þess geta verið með í þessum keppnum og hafði engar sérstakar áhyggjur af því! Mér dettur þetta bara í hug af því að ég var að horfa á Ungfrú Reykjavík í gær. Nú er ekki nóg að vera sæt heldur verða þær að geta dansað líka...ég fékk alveg rosalega kjánahroll þegar að þær voru að dilla sér þarna á sviðinu. Þær voru þarna hvor annarri taktlausari og að reyna að muna sporin, eins og það sé ekki nóg á þær leggjandi! Annars var þessi sem vann mjög hugguleg í alla staði og danskennari í þokkabót...þannig að má eiginlega segja að þetta hafi ekki verið sanngjörn keppni!
Mig dreymdi hins vegar um að vera dansari í eurovison, þeir sem þekkja mig vita að ég er algjör eurovision nörd! Ef að ég hefði þraukað aðeins lengur hjá Báru hefði sá draumur kannski getað ræst. Ein af dönsurunum hennar Selmu í ár var hjá Báru á sama tíma og ég! nema ég var komin aðeins lengra en hún og þótti "betri" Hún var látin dansa einhverntíman sóló sem að ég var svo látin taka við, fengin eldri og betri dansari í málið....... Ég bar nú reyndar ekki meiri virðingu fyrir þessu hlutverki en svo að ég fór bara á blindafyllerí kvöldið fyrir sýninguna. Þetta var útskriftardagur ykkar flestra þ.e. Ásdísar, Hildar, Siggu og fleiri og hef ég reyndar hingað til kennt pabba hennar Siggu um þetta fyllerí mitt, hann var svo ansi duglegur að fylla á freyðivínsglasið mitt!
En hvað um það, ég hef heiðrað þennan draum með því að halda gott Eurovision partý undanfarin ár og ætla ég að halda því áfram! þannig að þá vitið þið það. Partý hjá mér 21 maí, allir velkomnir!

14.4.05

Halló saumó!

Sælar, gaman að hitta ykkur hér. Takk fyrir öll bréfin, þau glöddu mitt hjarta. Já, vildi segja aðeins frá mínum plönum núna eftir útskriftina. Útskriftarferðin verður til Perú, fer 15. maí og kem heim 30. maí. Fer pakkaferð með Kilroy þar sem byrjað verður að fara í Amazon frumskóginn, svo flogið til Cuzco og inkaborgin fræga skoðuð, þá ferðast til Ollantaytambo eða hins helga dalar, þaðan verður svo gengið 'inkastíginn' til Macchu Picchu, en það tekur 4 daga. Svo endar pakkaferðin í Cuzco en þar ætla ég að vera áfram 4 daga til að skoða betur þessa stórmerkilegu borg.
Síðan byrja ég að vinna hérna 1. júní. Ég byrja á lyfjadeildum í Roskilde Amt Hospital í Köge, Köge liggur fyrir sunnan Kph og tekur ca. 30 mín. lestarferðin þangað. Ég er mjög ánægð með að vera þar, þetta er nógu lítill spítali til að vera ekki of sérhæfður og nógu stór til að gefa manni góða innsýn í starfið. Einnig er umtalað gott andrúmsloft og félagsandi meðal starfsfólks þar en það er þáttur sem mér þykir einna mikilvægastur á vinnustað, þar sem hann hlúir að öllum öðrum þáttum er mikilvægir eru.
Ég veit ekki hvenær ég kem næst heim, hef ekki planað neitt, síðustu ferðir mínar hafa verið afsláttarferðir sem ég hef 'hoppað á' þegar tækifærið gefst, reikna með að næstu ferðir verði einnig þannig.
Bið kærlega að heilsa ykkur öllum, hafið það gott :) :) :)

8.4.05

Helgarfrí:-)

Jæja, enn einn föstudagurinn runninn upp. Mikið er ég fegin, orðin ansi þreytt á þessum nemendum mínum í augnablikinu... En hér heima er svo sem allt á fullu líka, ætlum að ráðast í framkvæmdir, færa strákana í forstofuherbergið og prinsessan á að fá sér leikherbergi. Kannski hún lulli örlítið lengur inni hjá mömmu og pabba, kemur í ljós:-)
Annars á bara að slaka á fyrir átök næstu viku, panta pizzu, mála, hofa á imbann (haldiði að Stulli hafi ekki bara skellt sér á stöð 2)....og breyta og bæta.
En annars gerðist ég ansi menningarleg um daginn, pantaði miða á Klaufar og kóngsdætur handa mér og strákunum og á Ávaxtakörfuna handa mér, Stulla og Elsu Björgu, þar fór ca 20.000 (kostar sko það sama fyrir mig og Elsu) en það er hluti af uppeldinu að troða smá menningu inní börin ekki satt??? Þannig að í lok apríl verður nóg að gera.
Jæja hafið þið öll/allar góða helgi og njótið hvors annars:-)

5.4.05

Hvar er Sigga??

Ég lýsi hér með eftir Siggu, betur þekktri sem Ziggy!
Ef þið rekist á hana, viljiði segja henni að páskafríið er búið :)

Ég veit ekki alveg hvort að ég komist í kvöld... í saumó:( ... en ætla að reyna ..
mikill lærdómur og svo er Ari fyrir vestan að vinna i kvöld og samkvæmt síðasta commenti frá Björgu .. þá er hún hætt hjá mér!!.. Ég er nú eftir að láta reyna á það ;) híhíhí... Nema hlutverkum okkur verði skipt.. þeas ég verði barnapía fyrir hana áður en langt um líður...
Annars er ekkert nýtt héðan.. skóli og börn^5 og allt hitt náttlega...
nema hvað ég er komin með "heilsuna" eina ferðina enn :) rosa ánægð með það ... fór í gær í pallatima, sem var nú pínu skrítinn þar sem ég er bæði á verkjalyfja og pensilin kúr... var ekki að standa mig eins og flestir :) haha en það er bara gaman að því ;) en frá og með deginum í dag er það bara pensilin þannig að tíminn á morgunn ætti að verða aðeins betri (að minni hálfu) hahaha... Djö.... er mér illa við þetta helv.. dóp! Ég hef ákveðið að nú er ég hætt að vera veik.. nú er það hreysti og vellíðan sem tekur öll völd;) hahaha veiii
Þið hjúkkurnar eigið við nebbavandamál meðan við skólaskvísurnar eigum við maga og bak vandamáli!!.. alveg magnað helv...

jæja þetta er nú ljóta bullið sem eg hef látið hér af hendi rakna... bið að heilsa ykkur ef ég kemst ekki í kvöld en annars sjáumst við bara ...

Over&Out

2.4.05

Buin ad profa norskan sjukrabil!!!

Ja ja stelpur minar. Thetta er sko aldeilis buid ad vera ævintyri hja mer. Mer tokst sem sagt ad detta a fimmtudaginn i næst sidasta brettatimanum og skall eg beint aftur fyrir mig a bakid. Thar sem eg gat ekki stadid upp fyrir verki i bakinu kom einhver sjukragaur a snjosleda ad kikja a mig sem sendi svo eftir odrum sleda sem var med svona kerru aftur i med dynu i. Eg var beislud nidur i vagninn og keyrt med mig nidur fjallid thar sem vid bidum svo eftir ad sjukrabillinn mætti a stadinn sem for svo med mig inn i bæinn a "sjukrahusid" thar. Thad var ekki hægt ad taka X-ray thar svo thad var pælingin ad senda mig med sjukrabilnum 70 kilometra inn i næsta bæ til ad taka myndir!! En ad lokum akvad læknirinn ad gefa mer verkjalyf, senda mig heim og sagdi mer ad koma daginn eftir ef ekki eg myndi versna. Eg er sem sagt nuna sidustu daga buin ad liggja fyrir og bridja verkjalyf!! En thetta er nu allt ad koma til. Eg get alveg gengid og svona, er bara med svona constant verk nedst i bakinu. Thetta er væntanlega bara tognun eda eitthvad svona minnihattar meidsli. Annars erum vid komin aftur til Stokkholms nuna og fljugum svo heim a morgun. Eg er ekki ad hlakka neitt serstaklega til ad sitja 3 tima i flugvel!!! Var nu 6 tima i bil i dag ad keyra fra Noregi og hingad og eg var alveg ordin vidtholslaus undir rest!!!!! En fyrir utan thetta ohapp hefur thetta bara verid hin skemmtilegasta ferd. Begga eg er alveg til i joklaferd i sumar. Tha verd eg nu liklega buin ad jafna mig i bakinu.

Hafdis min, innilega til hamingju med ljosmodurina, thad er agætt ad vita ad thu verdir komin i bransann thegar eg fer ad skjota ut minum "fjorum"!!!!

Hef thetta ekki lengra i bili. Hlakka til ad sja ykkur allar fljotlega, Sigga Sig.