Kíkið í sunnudags moggann eða á síðuna mína :-)
Kv. Edda.
Heilardísirnar eru með okku Siggu Karls þessa dagana, nú er ég líka búin að undirrita kauptilboð! Ég held að við megu bara teljast frekar heppin að ná að selja og á ásættanlegu verði. Markaðurinn er alveg dauður og ekkert að gerast á fasteignasölum bæjarins, held að þeir opni bara eina kampavín í tilefni dagsins;-)
fólk sem keyrir alveg ofan í rassinum á bílnum mínum inn í íbúðarhverfi!!! Ég var í sakleysi mínu á leiðinni niður brekkuna í Grafarholtinu í morgun og kemur ekki bíll út frá Kristnibrautinni fyrir aftan mig. Það var einhver pía á svörtum Lexus greinilega orðin of sein því hún keyrði alveg upp við mig. Þetta er eitt sem ég þoli ekki þannig að púkinn kom upp í mér og ég ýtti létt á bremsuna til að láta vita að ég fílaði þetta ekki. En gellan bilaðist og flautaði og sendi mér puttann og allar græjur. Hún var fyrir aftan mig meirihluta leiðarinnar og ég var farin að halda að þetta væri einhver geðsjúklingur sem ætlaði að elta mig alla leið niður í skóla og berja mig :-) Nei nei þegar hún beygði út af gaf hún mér byssumerkið í hausinn. Flott pía!!! Vona bara að hún finni ekki út heimilisfangið mitt út frá bílnúmerinu og bíði mín með byssu þegar ég kem heim í dag.
Skrifaði undir nýtt kauptilboð í dag, þannig að sólin er farin að skína aftur á mínum bæ:-)
Vona að þið fjölskyldan hafið það frábært í Svíþjóð og vonandi fáið þið gott veður þar. Annars er mjög gott veður hérna svo þú getur haft það bak við eyrað næst þegar þú ætlar í frí :-)
Jæja skvísur, þá er loksins kominn tími á innflutningspartýið. Það verður laugardagskvöldið 29. júlí svo takið það frá. Hlakka til að sjá ykkur.
....... stelpan sem bauð í íbúðina mína féll á greiðslumatinu þannig að íbúðin er komin aftur í sölu :-( Í millitíðinni keypti Guðjón bróðir parhús og við gerðum sem sagt munnlegt samkomulag um að við myndum kaupa þeirra íbúð. Þannig að Hafdís mín fljótlega mun ég einnig eiga 2 íbúðir eins og þú......... en ég vona samt innilega að okkur takist að selja áður!
Hæ hó allar saman
Haldið þið ekki að mér hafi dottið í hug að setja íbúðina á sölu á föstudaginn, enda varla hægt að búa þrír í litlu holunni minni. Hélt að þetta mundi taka marga mánuði, en viti menn það kom tilboð í hana á þriðjudag. Og núna er sem sagt búið að skrifa undir kauptilboð, fékk uppsett verð sem ég get ekki verið annað en ánægð með, stelpan á reyndar eftir að fá greiðslumatið......en vonandi gengur það í gegn. Við verðum sem sagt á götunni 1.okt en þá er afhending. Við erum ekki búin að finna neitt sjálf, en erum að vonast til að Guðjón bróðir selji sína svo við getum keypt hana. Hún passar okkur nefnilega svo vel :-) En já sem sagt margt að gerast þessa vikuna.....
Jæja nú er það alveg komið á hreint. Ég fékk staðfestingu á vinnunni og launatilboð í dag. Ég byrja s.s hjá KPMG 1.sept. Ég er komin með alvöru fullorðinsvinnu. Svolítið skrítin tilfinning en mjög spennandi. Annars er maður núna að reyna að koma sér í lærdómsgírinn, verð að klára þennan skóla í ágúst. Fékk próftöfluna fyrir helgi og lítur hún bara nokkuð vel út. Það er bara alltaf erfitt að læra á sumrin. Kannski ekki í þessu góða veðri, það vinnur með manni :) Bið að heilsa í bili. Beggs