31.3.05

Ljósmóðir

ætla ég að verða þegar að ég er orðin stór! Það sem sagt komið á hreint að ég fæ skólavist og ég held að ég skelli mér bara! Annars bara allt gott að frétta:-)

28.3.05

Farin að standa á brettinu!!

Heja fra Norge!! Hvað segið þið þá dúllurnar mínar? Eruð þið búnar að hafa það gott um páskana? Ég er byrjuð á brettanámskeiði og er farin að standa soldið eftir daginn!! Svo var kennarinn að tala um að við færum í stólalyftuna á morgun og kannski lærum við að stökkva á föstudaginn. Íha. Svo voru búðirnar auðvitað straujaðar aðeins í Stokkhólmi. Þetta var náttúrulega bara snilld, önnur hver búð þar er H&M. Mjög hentugt fyrir svona námsmenn eins og okkur systurnar. En nóg í bili, vona að þið hafið haft það gott um páskana. Heyrumst fljótt. S.S.

22.3.05

Nebbi Snebbi

Helgin liðin og ný vinnuvika hafin. Hún byrjaði reyndar ekki vel, ég átti að vera að vinna morgunvakt/næturvakt í gær. Á morgunvaktinni fékk ég skyndilega blóðnasir, ég hélt að þetta væri bara eitthvað tilfallandi svo að ég var ekkert að æsa mig yfir þessu...en svo gerðist það aftur um kvöldið, heima í sófanum, bara sí svona! En ég ákvað að drífa mig í vinnuna og þegar að þangað var komið byrjaði að fossblæða í 3 skiptið. Þá ákvað ég að nú væri nóg komið og dreif mig yfir á slysó, hann Hlynur læknir brenndi fyrir æð og setti tróð í nefið á mér og sagði mér að fara heim.......ég sem sagt gat ekki unnið næturvaktina og það þurfti að kalla út 20 mín eftir að vaktin var byrjuð....ekki mjög vinsæl:-( En við Sigga erum sem sagt yfir nebbarnir...ótrúlegt vesen á okkur!
Annars var helgin ágæt, ég fór í bæjarferð á laugardaginn og keypti mér bara fullt af fötum! Svo bauð Herdís mér í mat um kvöldið, svo kom Sigga og við sötruðum hvítvín og bjór eitthvað fram á nótt...það var nóg til þess að ég var að drepast í hausnum á sunnudaginn.. Þannig ég er hætta að drekka...þangað til næst!

17.3.05

Nebbavesen

Jæja jæja loksins ætla ég að blogga eitthvað. Er sem sagt að fara í nebbaaðgerð nr 5 á morgun og vona svo heitt og innilega að þetta verði sú síðasta á ferlinum. Komin með mikið meira en nóg af ástandinu á nefinu á mér. Hafdís mín þú ættir að skilja þetta :-/ En þar sem ég verð nú heima í bólinu alla helgina hvernig væri að þið munduð nú kíkja aðeins á mig svo mér leiðist ekki. Ásdís takk kærlega fyrir rammana. Nálgast þá hjá þér eftir helgi, nema þú lítir við hjá mér.
Annars er bara allt fínt að frétta. Lífið snýst um ekkert annað en vinnu og svo djamm öðru hverju. Fór einmitt á vel heppnaða árshátíð vinnunar síðasta föstudag og var þar vel tekið á því. En finnst endilega að við vinkonurnar ættum að skella okkur á eitt gott djamm saman áður en formlegur próflestur hefst, við höfum rúman mánuð til stefnu! Hvað segið þið um það?

Vona að ég sjá einhverja af ykkur hér í sveitinni minni um helgina,

Nebba :0)

Desperate housewives - testið :)

Ég set hér linkinn af prófinu sem Edda sendi okkur ... endilega takið það og leyfið okkur að heyra hver þið eruð:)

http://abc.go.com/primetime/desperate/quiz/index.html

14.3.05

Rólegheit

Voru um helgina sem fyrr, þetta snerist um að sofa og borða, færa sig úr rúminu í sófann! Það sem að ég gerði annars merkilegt um helgina var að fara að sjá pilobolus með Beggu á laugardagskvöldið! Sýninging sjálf var alveg meiriháttar en það sama er ekki hægt að segja um aðstandendur sýningarinnar og áhorfendur. Þetta var auðvita tómt klúður þarna niðri á gólfinu og það sá enginn neitt. Fólk brást þannig við að það öskraði og gargaði og gekk út í miðju dansatriði, þeir sem ekki gengu út voru þarna á vappi um gólfið og leyfðu börnunum sínum að hlaupa um eins og á góðum rokktónleikum! Þegar að við fórum að sjá flamingo dansarann Cortes hérna um árið var sama vandamál í gangi þannig að maður hefði haldið að það væri komin reynsla á þetta. Annars fengum við Begga miðana á góðu verði og sátum á fínum stað, eina sem truflaði einbeitinguna var liðið niðri sem var bara með vesen.
En þar sem að líf mitt er búið að vera full rólegt undanfarið auglýsi ég hér með eftir tjútti og stuði næstu helgi, kallinn að fara að hitta strákana á laugardagskvöldið og því ekkert annað að gera fyrir mig en að fara á ærlegt djamm, er einhver með?

10.3.05

Desperate housewifes!!!

Bara minna ykkur á nýja seríu á RUV í kvöld kl. 22:20 eða á eftir 22 fréttum.
Þættirnir sem eru að slá í gegn um allan heim. Ég hlakka allavega mjög til að sjá þá.

Nýtt áhugamál!

Sælar stelpur,

Mér líst mjög vel á fjallaferð sem fyrst. Það myndi henta mér betur ef við færum um þarnæstu helgi. Er að fara í fjármálapróf í næstu viku og nú er bara læra læra læra þangað til. Ef þið farið um helgina þá kem ég bara með seinna.
Í gær skellti ég mér í Bingo í Vinabæ. Þetta var frábært. Spennan var svo mikil að það var alveg ótrúlegt. Peningavinningar í boði mmm hefði ekkert haft á móti því. Fólkið sem sækir þetta er mjög fjölbreytilegt. Ég bjóst aðallega við tæjum og forföllnum spilasjúklingum, en svo var ekki. Þetta var mestmegnis ellilífeyrisþegar og fólk á miðjum aldri. Svo var þarna inn á milli ungt fólk sem var greinilega að prófa í fyrsta skipti. Bingostjórarnir stóðu til að byrja með við borðið okkar og voru okkur til aðstoðar. Við vorum sem sagt mjög greinilega byrjendur og kunnum ekki neitt. En eftir nokkra leiki var maður kominn á full swing. Ég held að við höfum spilað 12 leiki og vorum að til rúmlega ellefu. Það versta var að það kom ekki upp neitt Bingo hjá okkur ;-( . En allt í lagi því ég er alveg pottþétt á því að ég fari aftur og þá muni ég vinna þann stóra. Maður verður víst að passa sig hvar maður situr því þetta er eins og í sundlaugum borgarinnar hver með sitt pláss og best að rífa ekki af þessum eldri og vitrari borðin. Eins og þið kannski sjáið þá mæli ég eindregið með því að saumaklúbburinn geri sér ferð í Vinarbæ eitthvert kvöldið og spili Bingo. Alltaf spilað á sunnudkv, miðvdkvöldum og föstudagskvöldum frá 19:15 til rúmlega 23:00. Hvert bingospjald kostar 80kr., 150kr. og 160 kr. Fer eftir lit. Mjög gaman.
Jæja skvísur læt þetta duga að sinni
Beggs

8.3.05

Er komið vor???

Mikið er gaman að labba í og úr vinnu í birtu þessa dagana. Veðrið leikur við okkur og maður kemst í sumar-grill fíling.... En nóg um það, þetta er kannski bara lognið á undan storminum.
Afmælið hennar Elsu Bjargar er yfirstaðið og foreldrarnir enn að ná sér eftir 40 manna veislu þann daginn... Saknaði samt ykkar stelpur sem eru einhleypar og barnlausar,,, voru þið kannski þunnar,,, hí hí hí
En hvaða fjallaferð er verið að tala um?
Hef ekki meira að segja í bili, er farin að hlakka til helgarinnar, IDOL og svona.
Best að fara að elda grjónagraut fyrir familíuna áður en maður fer í ræktina með stór-litlu systur.

Herdís.

7.3.05

Alltaf sama tuðið í mér!

Sælar píur.
Það er þetta með fjallaferðina. Nú fer að styttast í næstu helgi svo það er spurning hvort þið viljið fara þá eða helgina eftir það. Ég væri reyndar alveg til í að fara báðar helgarnar en þó á sunnudeginum seinni helgina því mar verður víst í smá þynnku á laugardag!! Hverjar hafa áhuga á að koma með og hverjar komast hvenær?

Sjónvarpsþáttur

Hæ aftur.

Vildi bara deila með ykkur þættinum sem ég var að horfa á á meðan ég bloggaði. Hér er allt fullt af raunveruleikasjónvarpi og ýmsum afbrigðum af því, sennilegast sýnt meira af raunveruleikasjónvarpi en nokkru öðru. En þátturinn sem ég var að horfa á var um raunverulega fyrrum innbrotsþjófa sem brjótast inn til fólks, taka það upp á videó, sýna fólkinu það og benda þeim á að þau þurfa öruggari hús, og enda svo á því að gera húsin öruggari með þjófavarnarkerfi, lásum og fleira, engin Vala Matt hér á ferðinni. Þeir bókstaflega rústa heimilum fólks, brjóta glugga og hurðar til að komast inn, rífa sjónvörp, græjur og þess háttar úr sambandi og setja allt á hvolf og stela öllu verðmætu (en skila öllu aftur í lok þáttarins, fjúkk, annað væri ekki hægt hér í Ameríkunni, mætti sennilega ekki sýna það). Skrýtinn en nokkuð skemmtilegur þáttur á Discovery Channel.

Heyrumst, Edda.

Loksins bloggað

Hæ stelpur mínar.

Ég er búin að ætla að skrifa hérna í MJÖG langan tíma, loksins, loksins.
Allt fínt að frétta af okkur, nenni ekki að fara að sofa núna þó svo klukkan sé orðin eitt hjá mér. Er bara í því að svara tölvupóstum og svol.
Til hamingju með stelpuna þína Herdís mín, vonandi var gaman í dag.
Það er enn allt á kafi í snjó hjá okkur og á víst að snjóa meira núna í vikunni, jibbííí. Þetta er alveg orðið ágætt held ég, vil fara að fá sumarið.
Ég fór til Californiu núna í febrúar, var í 5 daga, rosa gaman. Fór ein meira að segja. Við ákváðum þetta með 2 daga fyrirvara. Ég fór aðallega til að skoða staðinn sem við ætlum að reyna að vera á. Keyrði um hverfin og skoðaði húsin. Mjög fallegt svæði. Vonandi getið þið komið í heimsókn til okkar þegar við erum flutt þangað, sérstaklega þar sem Flugleiðir ætla að fljúga beint þangað.
Annars eru Ýr og Gummi bæði bara á fullu í skólunum sínum og Elísabet alltaf að stækka og læra nýja hluti.

Heyri vonandi í ykkur fljótlega, kv. Edda.

5.3.05

Laugardagskvöld með Hafdísi

Heldur rólegt yfir okkur hjónunum um helgina, sit hér og blogga á laugardagskvöldi........
Fórum í dag á háskólakynninguna, mikið verið að spá í námi. Miklar pælingar í gangi, á ég að fara í ljósmóðurfræði eða á ég að fara í lýðheilsufræði á mastersstigi eða mannauðsstjórnun..á Gummi að fara í fjarnám með vinnu eða bara í fullan skóla og kíla þetta í gegn. Það þýðir að ég verð að vinna, engin skóli þá fyrir mig.. Á ég kannski bara að fara á kaf í þessi verkefni í vinnunni sem að ég er búin að koma mér í??? vá hvað þetta getur verið flókið! Annars er ég búin að vera á námskeiði um meðferð til reykleysis, get gert verkefni því tengdu og fengið masterseiningar, ég að "nenna" því, úff, veit ekki!. Kerlingarnar þarna á námskeiðinu gripu mig glóð volga og tróðu mér í reykleysisteymi spítalans...áður en að þið vitið af verið ég farin að vinna mjög náið með Þorgrími Þráins og co.
Annars vorum við m.a. að æfa samtalstækni á námskeiðinu, ég lenti með sálfræðingi í æfingunum og á þeim stutta tíma var hún búin að greina mig....burn out í starfi með marga þætti sem hafa áhrif á það, svo að þetta er kannski ekki svo flókið!?
En í allri þessari ringulreið þótti mér vænt um að sjá kunnulegt andlit í nýja bæklingi Háskólans í Reykjavík..engin önnur en Nína Fína;-)

4.3.05

Loksins helgi

Jæja loksins er komin helgi.... Annars líður tíminn svo hratt að það er, að mér finnst Idol á hverju kvöldi:-)
Ég er sem sagt komin með röddina aftur og get farið að beita henni að krafti aftur...
Þar sem Sturlaugur virðist bara vera frjór í kringum mai-júni þá erum við að halda afmæli aftur um helgina. En fyrir 2 vikum buðum við fjölskyldunni í 7 ára afmæli hans Bjarka Ragnars... þannnig það er taka tvö á sunnudaginn,,, baka baka baka. Sótti skvísuna á leikskólann áðan eftir Bónusferðina og tók hún ekkert smá flott á móti mér með kórónu á höfðinu og sagði "Elsa ammæli í dag" Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt
Sjáumst hress á sunnudagsmorgun:-)

Áfram Hildur Vala.....

Föstudagurinn 4.mars

Sælar og blessaðar:)
Þá er það komið á hreint.. skólinn okkar Siggu mun heita Háskólinn í Reykjavík frá og með 1.júlí 2005. Við útskrifumst sem sagt úr þeim skóla... magnað alveg hreint.. ég sem byrjaði í Tækniskóla Íslands sem varð eftir 2 ára veru mína þar í Tækniháskóla Íslands og nú 2 árum síðar... Háskólinn í Reykjavík..
En úr því að ég er komin út í þessa umræðu þá er rétt að byrja á byrjuninni.. Árið sem ég var á Skógum var síðasta árið sem skólinn var starfræktur sem gagnfræða og framhaldsskóli, hann varð að Bænda eða hesta skóla sem gekk í max 2 ár... og er nú bara hótel.. Jæja... svo var það hárgreiðslan .. jújú ... en ég var síðasti árgangurinn sem úrskrifaðist sem hárgreiðslu eða hárskeri, en ekki hársnyrtir eins og þetta heitir í dag!!... Nú enn á ný fór ég í skóla og það var VT .. nema hva... ég var að sjálfsögðu síðasti árgangurinn sem útskrifaðist úr skólanum sem þá var á Ánanaustum, en eftir það urðu miklar breytingar á honum!!.. því segi ég það hvað er málið með mig og skóla!!!

En þetta var nú ekki það sem ég ætlaði að ræða... heldur var það árshátiðin í gær.. Hún var í sjálfu sér ágæt.... með miklum sprengingum og látum í partýinu hjá Sveinbirni var haldið niðrá Hótel Ísland / Broadway.. Allir í góðu og glimmrandi skapi ... þar til við sáum það að það var ekkert borð fyrir okkur... vá ég varð svo reið að það munaði svona litlu (setjið þumal og vísifingur næstum saman) að ég gengi út... En fyrir tilstilli konu eins bekkjarbróður míns þá reddaðist það.... því hún er að vinna þarna niðurfrá og hreinlega náði í borð og reddaði þessu... og það sem fór alveg með það var að skemmtinefndin var byrjuð að borða meðan við stóðum eins og illa gerðir hlutir .. en vitaskuld mjög fallegir ;) útá miðjum gangi !!
Iss þetta rekstralið... þetta er fólkið sem lærir stjórnun!!! svona fór það !!
en annars var maturinn æði og í heild fyrir utan þetta var þetta fínt kvöld... Ari minn kom um 10.30 eftir að hafa spilað síðasta deildarleikinn sinn með Skallagrími:) og að sjálfsögðu unnu þeir:)

Fór í Bónus áðan og hitti raddlausa kennarann í kælinum ... við spjölluðum smá ..annars var svo kalt að við ákváðum að hittast bara í afmælinu á sunnudaginn:) en raddlausi kennarinn er kominn með röddina:)

Jæja læt þetta duga... i bili ... sjáumst vonandi sem flestar / flest á sunnudag:)

Over & out

PS.. endilega spyrjið Siggu hvernig hún skemmti sér á árshátið:) og hvenær hún hafi komið heim.... híhíhíh

1.3.05

Raddlaus kennari

Jæja stelpur

Loksins geri ég tilraun til að blogga... Ég reyndi reyndar í gær líka og þá stofnaði ég mína eigin síðu:-) geri aðrir betur.
Annars er allt gott að frétta nema ég er hálf raddlaus og hvað gerir raddlaus kennari? situr heima og heldur kjafti... En í dag fór ég reyndar í vinnuna og sagði sem minnst (reyndi það a.m.k.)
Jæja annars er allt fínt... Ásdís Flott mynd af þér og Ívan,,, hann vinnur með mér... rosa sætur...
Bæjó í bili


Þessi er fyrir þig Dísa! Posted by Hello

Smá mistök :-/

Nú er ég að gera smá tilraunir með að setja myndir inn. Ég s.s hélt að það myndi koma mappa inn á bloggið með myndum. En það gerðist ekki. Hmmm Þið verðið bara að sætta ykkur við þessar 3 myndir sem komnar eru inn. Sem betur fer fóru ekki allar inn hehehe. Sit hér og hlæ og hlæ yfir þessu. Annars er bara allt það besta að frétta. Próftaflan komin og lítur allt í lagi út. Þannig nú er bara að byrja að skipuleggja sig fyrir prófin og byrja að læra af viti þannig þetta gangi nú upp þessi önnin. Ég hugsaði mikið til ykkar á sunnudaginn á meðan ég sat í Odda að vinna verkefni. Hefði alveg verið til í dekurdag í Laugum í staðinn. Það er víst ekki allt hægt.
Hvernig er það er einhver skíðaferð um helgina??? Eða var búið að fresta þessu? Ég bíð bara eftir spennt eftir að vita daginn.
Farið nú að skrifa
Beggs


Guðlín, Herdís og Berglind Posted by Hello