29.4.06

Í fréttum er þetta helst

ég er núna að vinna á fæðingargangi og er á þremur vöktum búin að taka á móti 3 börnum! 2 stelpur og 1 strákur! Þetta er voða gaman enda hefur þetta allt gengið mjög vel hingað til. Er samt mjög spes að vaða í blóði, kúk og legvatni...en svona er náttúran og þetta valdi ég mér! Tölvugarmurinn minn gaf upp andann um daginn svo að ég fjárfesti í fyrstu fartölvunni, var búin að vera tölvulaus í rúmar 2 vikur og var ekki að fíla það. En núna er ég aftur orðin online og er búin að taka gleði mína á ný:-)
Er núna að bíða eftir kvöldmatnum en svo er það bara fæðingarvakt frá kl 20 til 8, vona bara að ég taki á móti fleiri börnum......

17.4.06

Gleðilega páska

Jæja þá er þessi hátið og þetta góða frí senn á enda. Við erum búin að hafa það mjög fínt um hátíðina. Skírdagur fór aðallega í það að slaka á og borða góðan mat ala Stulli. Á föstudaginn langa var lagt af stað uppí bústað til Svanhildar og Dedda (en þau leigðu bústað við Útlhlíð yfir helgina). Þar var mjög notalegt, mikið drukkið, borðað og masað. Stulli eldaði geggjaðan saltfisksrétt sem varð til þess að allt áfengi sem drukkið var um kvöldið hafði engin þunn áhrif á mannskapinn, algjör snilld.
Á laugardeginum var slakað á og tekinn lúr og ganga. Á leiðinni heim kíktum við svo á hinn kingimagnaða Gullfoss sem var mjög fallegur í öllu sínu veldi. Eftir stutt stopp á Selfossi eftir viðkomu í ÁTVR þar í bæ og Kaffi Krús var lagt af stað til Reykjavíkur. Hafdís og Gummi kíktu í heimsókn á laugardagkvöldinu og var gaman að sjá þau sætu hjón og spjalla um daginn og veðrið, (aðallega daginn samt, heheh).
Sunnudagur: páskadagur, Húsfreyjan vaknaði snemma sem endra nær og bakaði tvær dýrindis kökur fyrir skírn sem átti sér stað seinna um daginn. Elsa Björg og Stulli fóru í kirkju að vanda. Að sjálfsögðu nartaði ég (súkkulaðigrísinn) í páskaegg meðan á herlegheitunum stóð. Eitthvað held ég að viktin sýni of háar tölur eftir helgi...
Litli drengurinn Stínu og Gulla fékk s.s. nafn kl. 2 á páskadag. Hann heitir Jón Breki og er algjör dúlla.
Eftir kræsingar í safnaðarheimili Mosfellsbæjar hélt leiðin heim á leið að undirbúa páskalambið og taka aðeins til í kotinu því tengdó og Doddi litli (enn hann var einn heima) komu í mat til okkar. Svo seinna um kvöldið komu systur Stulla og makar + Jón Breki og var spilað Trivial fram á nótt. Það má taka það fram að ég, Stulli og tengdapabbi unnum spilið.
Nú er annar í páskum og ég og dætur mínar tvær vöknuðum kl.7 búið er að borða morgunmat og stefnan er að slaka bara á í dag og fara svo í matarboð til tengdó í kvöld.
Hvað segið þið hinar og hvernig voru páskarnir hjá ykkur.