Stelpubíó
Sælar stúlkur.
Hvernig líst ykkur á að fara í stelpubíó bráðum á myndina The Wedding Date? Ég er laus flest kvöld svo gaman væri að heyra frá ykkur hinum hvaða kvöld henti best.
Sælar stúlkur.
Á sunnudaginn næstkomandi ætlum við að halda afmælisveislu í tilefni þess að dætur okkar eiga afmæli um þessar mundir, Lena Margrét varð 5 ára þann 3.mai og Sandra Ósk verður 9 ára þann 22.mai
Hæ stelpur mínar.
Nú er tæp vika eftir af þessari próftörn. Mér finnst þetta engan endi ætla að taka. Ekki skánar það því ég á 2 erfiðustu prófin eftir á föstudag og laugardag. En maður reynir bara að massa þetta. Allavega sé ég börnin mín ekkert nema þegar þau eru sofnuð og rétt í mýflugumynd á morgnana.
eða þannig sko..... Við Gummi eigum okkar fyrsta brúðkaupsafmæli næstu helgi, við erum nú ekki búin að ákveða hvað við ætlum að gera skemmtilegt í tilefni dagsins en förum alla vega í brúðkaup 14 maí! Svo er mamma samviskusamlega búin að geyma bita af brúðarkökunni í frystinum hjá sér þannig að við fáum okkur hana í tilefni dagsins! Svo er aftur brúðkaup helgina eftir, eurovisionbrúðkaup eins og við gerðum það! Það verðu sko gaman að halda upp á brúðkaupsafmælið okkur með því að fara í 2 brúðkaup!
Jæja stúlkur!