29.8.05

Wedding crashers

Hæ skvísur.
Er einhver ykkar sem á eftir að sjá Wedding crashers og langar að koma með mér í bíó? Endilega látið í ykkur heyra. Langar að sjá hana áður en hún fer úr bíó.

Helgin!

Komið sælar skvísur,
Vona að þið hafið átt góða helgi. Okkar var alveg hreint yndisleg. Föstudagurinn fór í að klára eitt verkefni sem ég er að fara að skila á eftir og að refresha hahaha. Ein einkunn kom inn á miðvikudag og kom ekki inn á heimasvæðið fyrr en eftir nokkrar hringingar í nemendaskrá og 2 ferðir á skrifstofu deildarinna, s.s á föstudag. Þannig þegar líða tók á daginn var ég orðinn eins og geðsjúklingur á tölvunni. Lét aðra um verkefnið, nei nei gerði þetta svona inn á milli. En einkunnin kom áður en ég fór heim. Fékk 8 og var næst hæðst ekkert smá sátt, Erla var hæðst með 8,5. Þvílíkir snillingar hehehe. Við brunuðum í Svignaskarð um kvöldmatarleitið. Þar beið okkar lítill kósý bústaður hárgreiðslufélagsins. Mjög nice með potti og öllu. Það átti að halda árshátíð stofunnar þarna um helgina en var hætt við þannig við fengum bústaðinn. Ég skil samt ekki alveg hvernig átti að koma rúmum 20 manns þarna inn þar sem var svefnpláss fyrir mestalagi 6. Það hefði allavega verið spennandi að taka þátt í því ævintýri. Magnea og Snorri og mamma og pabbi komu svo á laugardeginum og borðuðum við öll saman. Magnea + Snorri héldu svo áfram í Húsafell en mamma og pabbi gistu í bílnum. Við komum svo heim seinni partinn í gær sátt eftir góða helgi.
Nú fer bara dagurinn í dag í að senda elsku Hildi okkar góðar hugsanir í von um að henni gangi sem best, sem henni gerir pottþétt.
Ég vil líka óska Gumma hennar Eddu til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur
Beggs

28.8.05

Nóg að gera!!!!

Héðan er fullt að frétta!

#1 Búin að selja mína íbúð!

#2 Afhendi 15.okt

#3 Flyt þá í nýja húsið, sem verður að vera tilbúið þá!

#4 Held afmæli næstu helgi, Svavar Ingi 8 ára (3.sept) og Gunnar Valur 16 ára (5.sept), pönnuköku og vöfflukaffi á laugardaginn kl 15. Endilega komið í kaffi:)

#5 Það styttist í afmælið mitt, en það verður haldið að Heiðargerði 11, Þema afmælisins er "að mála", allir velkomnir:) í málningargallanum :) pizza og bjór í boði... Afmælið hefst kl 1600 föstudaginn 23.september.. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta, koma bara í innflutningsgeimið sem tilkynnt verður síðar;)
Hlakka til að sjá ykkur öll næsta laugardag :)
Kveðja Nína

23.8.05

Nokkrar breytingar

Hæ stelpur mínar.

Ég tók mér það bessaleyfi að breyta aðeins stillingunum á blogginu okkar þannig að enginn getur skilið eftir komment hjá okkur nema að skrá sig og þannig segja til nafns og engin tölva getur skráð comment hjá okkur eins og commentin við saumaklúbbnum hennar Hafdísar. Þetta voru víst tölvur að senda okkur þessi fínu skilaboð. Látið mig vita ef e-r er ekki sammála þessum breytingum mínum.

Knús Edda.

22.8.05

Saumó , saumó

hjá mér á fimmtudaginn næsta kl 20:30, bara að minna ykkur á það!
Annars bara allt fínt að frétta, 2 vikur í að ég byrji í skólanum og hlakka bara alveg rosalega til! Mér finnst eins og að ég sé að fara í eitthvað rosa frí, alveg að misskilja þetta!
Hlakka til að sjá ykkur, skildu mæting;-)

17.8.05

jæja

Við erum búin að kaupa húsið að Heiðargerði 11, það er alveg eins hús og Benni bjó í ... Þið komuð nú flestar þar inn, þannig að þið vitið hvernig það er:)
Nema hvað að við fáum það afhent á föstudaginn næsta.. Það má gera fullt en við ætlum nú "bara" að mála, setja á gólfin og skipta út á baðinu :) jú og svona smá hér og þar:) en ekkert stórkostlegt... En allavega fáum við fínan garð þannig að ég býð í grillveislu næsta sumar...

PS.. ef þið vitið um einhvern sem vantar fína íbúð... bendið þá á mína;)

16.8.05

Nýtt hús:)

Við erum búin að kaupa hús:)

Over & out

Hæ allar

Hæ stelpur mínar.

Vonandi hafið þið það allar gott. Langaði bara að senda ykkur kveðjur héðan. Gangi þér roslega vel í prófunum þínum Begga mín (og aðrar ef einhverjar eru að fara í próf).

Bestu kveðjur, Edda.

11.8.05

Ég er komin heim í Heiðardalinn!

Jæja þá er 2 vikna aflsöppun lokið. Þetta var mjög ljúfur tími. Frábært að dvelja í Portúgal sóla sig og slappa af. Krakkarnir voru líka mjög sáttir. Ég mæli samt ekkert sérstaklega með Heimsferðum,, Við byrjuðum á að millilenda á leiðinni út, það kom óvænt uppá, við vorum 7 tíma að fljúga út í stað 3 og 20mín. Hótelið var ekki 4stjörnu eins og sagt var. Barnaklúbburinn hafði verið lagður niður, heilsuræktin sem margir stóluðu á var í sumarfríi, og margt orðið sjúskað og komið til ára sinna... Svo var það toppurinn á öllu að það var milli lennt í Palma á leiðinni heim líka og okkur ekki hleypt út úr velinni í stoppinu sem átti að taka 20mín en tók 90mín.... En þrátt fyrir þetta var ferðin mjög ljúf.
Alltaf gott að koma heim í ferska loftið og fá sér kalt og gott vatn úr krönunum. Hlakka til að sjá ykkur allar sem fyrst er ekki saumó eða eitthvað fljótlega? Við ætluðum að halda matarklúbb eftir prófin hjá Berglindi ekki satt?
Kveðja úr Mávahlíðinni.

9.8.05

Mömmuklúbbur/Matarklúbbur

Vil byrja á því að óska Frömurum til hamingju með sigurinn á VAL í gær. En að allt öðru. Hildur kemur mjög líklega heim helgina 9-11 september. Mér var að detta í hug hvort við ættum þá ekki að láta verða af þessum mömmuklúbb. Hvernig líst ykkur á það? Ég held að hún ætli að vera í viku til 10 daga þannig við gætum haldið hann helgina eftir, 16,17 sept. Látið í ykkur heyra.

Beggs

4.8.05

Til hamingju!!!

Mig langaði bara að óska Fram innilega til hamingju með frábæran sigur á FH í gær eftir mjög spennandi og góðan leik. Þeir áttu þetta fyllilega skilið. Áfram Fram :-)

2.8.05

Alvaran tekin við

Nú er maður bara mættur eina ferðina enn upp á Þjóðarbókhlöðu okkar íslendinga. Grænu bólurnar eru byrjaðar að myndast. En það þýðir ekki að vera að svekkja sig á þessu. Nú er það bara harkan sex til 22.ágúst. Mjög spennandi tímar framundan.
Eftir að hafa eytt 3 frábærum vikum með strákunum langar mig ekkert að byrja að læra aftur. Í síðustu viku fórum við í 4 daga í Húsafell og fengum frábært veður. Lísa og Gísli voru þar og svo komu mamma og pabbi í eina nótt. Mikið fjör allan tímann og strákarnir skemmtu sér konunglega. Auðvitað mikið sport að fá að gista í tjaldi. Reyndar núna er maður bara halló ef maður á ekki hjólhýsi eða húsbíl, ég held meira að segja að tjaldvagnarnir og fellihýsins séu alveg að detta út. En ég er sátt í mínu tjaldi. Það var par með okkur sem hafði verið í gömlu A tjaldi og þegar þau löbbuðu út einn daginn var fólk á gangi framhjá og þau heyrðu þau segja:" Er þetta til ennþá" hehe þau skelltu sér bara aftur inn í tjald og biðu þar til fólkið var farið. Mér finnst þetta bara fyndið.
Á laugardaginn varð hann pabbi minn sextugur. Hann lokaði fyrir alla síma um miðnætti á föstudag og ætlaði sko ekki að láta ná í sig. Þau skelltu sér eldsnemma út úr bænum (Halla og Árni á Höllinni) en við börnin og fylgifiskar vorum svo heppin að faðir minn leyfði okkur að njóta hluta dagsins með honum um kvöldið. Við fórum s.s 7 saman á Vox að borða. Það var í einu orði sagt frábært. 5 rétta máltíð með 5 tegundum af víni með. Ekki slæmt, svo var auðvitað fengið sér mojito fyrir og eftir mat. Við enduðum svo öll niðri í bæ nema gamlingjarnir sem voru orðnir þreyttir og fóru heim. En ég mæli eindregið með þessum stað, góður matur og mjög góð þjónusta.
Jæja nú held ég að ég verði að fara að læra. Ég vil þakka þeim sem mættu á pallinn í sumar vona að það verði fleiri svona dagar á næsta sumri.

kveðja úr hlöðunni
Beggs