Hún er að koma í mars ...
Katie Melua heldur tónleika hérna í mars og mig langar mjög mikið að fara. Miðasala hefst þann 6. desember. Hefur einhver áhuga á að koma með mér og sjá hana live?
Nú er próftörnin að byrja og stressið að magnast upp. Skemmtilegur tími framundan ... Ég á eitt hópaverkefni eftir og er ekki alveg að meika það. Er komin með ógeð af hópavinnu eftir önnina. Það að koma hópum saman og standa í öllu í kringum það. Af hverju geta þetta ekki bara verið einstaklingsverkefni eða þar sem 2 og 2 vinna saman? 5-7 eru hreinlega allt of margir í hóp. Er í smá kasti núna :) En þar sem þetta er síðasti veturinn verður maður að taka smá Pollyönnu á þetta og halda ró sinni.
Bið að heilsa í bili
Beggs






