21.5.06

California

Takk fyrir kveðjurnar! Við erum búin að hafa það frábærlega gott hérna hjá Eddu og Gumma. Ferðin gekk ofboðslega vel, flugið var 10 klst með millilendingu í Calgary. Game-Boy reddaði algjörlega málunum. Fyrsta daginn vorum við í rólegheitum, fórum í æðislegan garð í bænum hjá E&G og svo út að borða um kvöldið. Dag 2 fórum við inn í San Fran villtumst oft yfir daginn. Við keyrðum yfir Golden Gate, kíktum á sæljónin og aðeins á miðbæinn. Leiðin heim tók 2-3 klst í stað 1 klst. Við verðum flott á leiðinni niður til San Diego. Spurning hvort við munum komast :)
Í gær var svo verslunardagurinn mikli. Við fórum í huge outlet og örkuðum á milli búða allan daginn. Enduðum svo daginn með grilli og Strawberry Daquiry a la Edda, svaka gott. Í dag byrjuðum við daginn með amerískum pönnukökum og súkkulaðiköku í tilefni dagsins og erum svo á leiðinni í skoðunarferð um svæðið. Á morgun hefst svo ferðalagið niðureftir strandlengjunni og er fyrsta stoppustöð Carmel.
Biðjum að heilsa í bili
Beggs

18.5.06

Til hamingju Ísland

með að Berglind fæddist á þessum degi! Til hamingju með daginn, vona að ferðin hafi gengi vel og dagurinn sé notarlegur í Californiu

10.5.06

Det er dejligt i Danmark

Jæja þá er sældin úti.... Við Bríet komum heim í gær þriðjudag eftir velheppnaða Köbenferð til Guðnýjar og Palla. Ýr vinkona fór einnig með sinn litla kút, hann Þórir. Börnin voru yndisleg og góð í alla staði, nema Þórir var orðinn svolítið þreyttur á búðarrápi og vera bundinn ofan í kerru, (bara ekta karlmaður). Annars var ekki hægt að kvarta undan þessum elskum.
Guðný og Palli tóku vel á móti okkur og stjönuðu við okkur allan tímann. Guðný sagði að þetta væri afslappaðasta heimsókn sem hún hefði fengið, enda vorum við Ýr ekkert að stressa okkur á búðarrápi of mikið. Við náðum samt að massa H&M og aðeins betur en það, hehehe
Við fengum dásamlegt veður sem var ekki verra þar sem við vorum að ferðast með kerrur, og gátum því setið úti og fengið okkur að snæða og drekka. Á kvöldin var því svo tekið rólega því litlu grísirnir sáu til þess að allir voru vaknaðir milli 7 og 8.
En það var gaman og gott að koma heim, hitta kallinn og rest af börnum og svo að sjá afrakstur helgarinnar, baðið mitt er orðið þrælflott, þökk sé Gumma....

9.5.06

Allt gert nema að læra

er hérna alveg að mygla yfir lærdómnum..skrapp þó aðeins út í sjoppu áðan á sandölum og ermalausum bol og keypti mér ananas lurk í tilefni dagsins. Alveg yndislegt veður og góð upphitun fyrir danmark eftir mánuð. Hlakka ekkert smá til að slappa af með einn kalda og kíkja í H&M...ég vona að Tóta sé farin að kæla bjórinn! Við ætlum svo að vera eina nótt í köben, fyrst leit ekki út fyrir það þar sem að það var alveg ómögulegt að fá hótelherbergi í kóngsins þessa helgina. En þá kom Elli bróðir hans Gumma sterkur inn og reddaði okkur herbergi á 5 stjörnu hóteli á besta stað í bænum! Við ætlum svo að kíkja í grill til Bjarka og Hildar á laugardagskvöldið svo að ef þú Auður mín ert laus laugardagskvöldið 10 júní þá er þér hér með boðið líka!
Saumó er greinileg á faraldafæti þessa dagana, við erum allar á leiðinni eitthvert eða nýkomnar. Herdís er sennilega bara í vélinni á leiðinni heim í þessum töluðu orðum. Gummi og Stulli tóku baðherbergið hjá þeim í gegn á með Herdís skrapp til Köben, ég var í eftirlitinu, kíkti öðru hvoru og var boðið í mat í Mávahlíðina föstudag, laugardag og sunnudag, ekki amarlegt það! Ég kom reyndar að tómum kofanum á sunnudaginn, þá voru félagarnir komnir á bar að horfa á fótbolta, það var svo sem auðvita!
sól og sumarkveðja