29.6.06

Kaupsamningurinn

var gerður í dag svo að nú er ekki aftur snúið! Núna er bara að vona að íbúðin okkar seljist sem fyrst en við erum að fara að sýna hana í fyrsta skiptið í kvöld! Blönduhlíð 9 er á fyrstu hæð með sérinngangi, hún er 123 fm og öll mjög snyrtilega að innan. Gengið er út í garð af svölunum en í garðinum er nýr sólpallur sem er sameiginlegur með öðrum íbúum húsins. Húsið sjálf er í mjög góðu standi og eru 3 íbúðir í húsinu. Þau sem við erum að kaupa af eru ekki að fara langt, þau keyptu hæðina fyrir ofan......
Þá er bara að vona að það sjáist meiri sól næsta sumar þegar að við getum farið að spóka okkur á pallinum:-)

23.6.06

Kveðjur

Hæ stelpur mínar.

Vildi bara senda ykkur smá kveðjur héðan frá okkur og óska Hafdísi og Gumma innilega til hamingju með nýja húsnæðið. Fæ vonandi nánari lýsingu á því sem fyrst og kannski myndir :-)
Ausa systir og fjölskylda eru hérna hjá okkur og það má alveg segja að það sé líf og fjör hérna í litla húsinu okkar. Við erum svo að fara á sunnudaginn næsta til Disney og San Diego. Það er hitabylgja hér hjá okkur núna 40°C og sól. Frekar mikið heitt.

Bestu kveðjur, Edda og co.

21.6.06

Gleymdi að snúa mér

í sumar sólinni í dag! Þannig að ég er eins og hálfviti í framan....skaðbrunnin á hægri hlið, með sólgleraugnarfar dauðans...... Ég og Maj-Britt hittum Herdísi og Stínu á Cafe París, fengum borð úti og sátum þar eins og klessur. Ég og Maj sötruðum hvítvín og hættum að telja eftir 3 glös, say no more..... Gummi kom, sótt mig og við skelltum okkur á völlinn, ég trappaði mig niður þar með kaffi og sótavatni.... En það má eiginlega segja að ég hafi verið að fagna nýju fjárfestingunni, Blönduhlíð 9, hmm með stæl............ og aumingja gummi var að vinna fyrir henni á meðan!

19.6.06

Vetrarferðin!

Var að spá í hvort einhver stemming væri fyrir skíðaferð í viku í janúar í staðinn fyrir borgarferð? Gætum farið með ódýru flugi hjá Icelandexpress og keyrt svo þaðan á einhvern stað í Austuríki. Hvað segið þið um það?
kv Beggs

16.6.06

17. júní!

Sælar skvísur
Hvernig er með matinn á morgunn? Ég er búin að panta fylltar svínalundir í Nóatúni fyrir okkur. Svo var ég að hugsa um að hafa sætar kartöflur með, hvernig líst ykkur á það? Okkur finnst þær allavega mjög góðar. Væri einhver til í að taka að sér meðlæti og kannski desert? Endilega látið í ykkur heyra. Líka hvaða tíma verið er að hugsa um.
Hlakka til að sjá ykkur á morgun
Beggs

10.6.06

Næsti saumó.

Hæ skvísur. Það komast allar sem hafa svarað næsta mánudag í saumó, sem eru allar nema Herdís, svo við sláum því hér með föstu að á næsta mánudagskvöld verður saumó hjá Hafdísi. Sjáumst hressar og kátar þá, SS.