saumó og Amsterdam
Sælar skvísur og gleðilegt nýtt ár!
Á ekki að vera saumó fljótlega? Væri ekki sniðugt að hafa hann og ákveða með matstölustaði í amsterdam? Það styttist óðum í ferðina og við þurfum nú eitthvað að fara að skipuleggja þetta. Ásdís kom með hugmynd að Boom Chicago en það hefur enginn svarað henni enn nema ég :-)
Hver á annars að halda næsta saumó??? Ég er ekki alveg með þetta á hreinu.
Látið nú í ykkur heyra..

6 Comments:
hæ hó girls, ég gat ekki lesið póstinn frá Ásdísi því hef ég ekki svarað!... En við Gummi erum opin fyrir öllu. Siggi og Guðfinna voru í amsterdam fyrir ári síðan og fóru á eittvað rosa flott japanskt steikhús! Svo er víst voða gott að versla þarna, ég veit ekki hvort það eru góðar eða slæmar fréttir;-)
Hef ekki hugmynd hver á næsta saumó en ég tippa á Siggu Sig
11:20 f.h.
Já það er ég sem á að halda næsta saumó. Ég var reyndar að spá í enda janúar þar sem ég er að halda stóra veislu eftir rúma viku!! Er það orðið of seint fyrir ykkur??
10:37 e.h.
til í hvað sem er (nánast)
kv. Herdís
5:07 e.h.
ég skil alveg að ykkur langi á sushi stað, mig líka en má ekki...
Þannig að við segjum pass við stöðum sem selja bara sushi, nenni ekki að pína mig og horfa á ykkur borða þennan æðislega mat...við förum þá bara eitthvað annað, Mc donalds t.d., kemur sterkur inn...;-)
9:11 e.h.
Við erum til í hvað sem er, en viljum endilega að þú getir borðað með okkur Hafdís. Kveðja Sigga og Hlynur
2:38 e.h.
Hæ saumaklúbbur, datt hérna inn og sá að þið ætlið að kíkja á veitingastaði í Amsterdam. Mig langar til að benda ykkur á Supperclub (http://www.supperclub.com/) og bókið strax online, til að fá pláss. Ég fór á einn slíkan í San Francisco og þetta er mjög skemmtileg upplifun. Bara borga eitt gjald fyrir 5 rétta dinner (óvissuferð matarlega séð) og svo eru þjónarnir í karakter og það eru skemmtiatriði. Og staðirnir sjálfir alveg rosalega flottir, þessi í SF var allur hvítur og maður sat í rúmum með fullt af púðum. Mæli með þessu, þetta er eitt best geymda leyndarmál Amsterdam.
7:28 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home