18.1.07

Komin aftur í heiðardalinn

Hæ stelpur mínar.

Vildi bara láta ykkur vita að við erum komin heim og ferðin gekk mjög vel. Þurftum að gista eina nótt í Boston áður en við komumst alla leið heim, en engar tafir eða neitt svol. vesen. Ég er bara búin að vera með þessa ROSA flugþreytu frá því við komum, þurfti að fara að sofa klukkan 9 á kvöldin, mjög ólíkt mér. En er núna öll að ranka við mér, klukkan til að mynda orðin tæplega 12 á miðnætti hérna hjá mér núna.

Við höfðum það rosalega gott á Íslandi. Það er svo gott að vita hvað við eigum góða ættingja og vini á Íslandi. Það var svo gaman að vera með ykkur, takk fyrir okkur. Ég hlakka mikið til að koma aftur í sumar, hitta ykkur allar, sjá Siggu Karls gifta sig, ná vonandi útskriftinni hennar Beggu og hitta nýjasta saumaklúbbsmeðliminn okkar (sem verður vonandi kominn í heiminn um það leiti :-)

Þangað til óska ég ykkur útskriftardömunum innilega til hamingju með daginn og vonandi verður frábært hjá ykkur í Amsterdam, efast reyndar ekki um það þegar þið eigið í hlut. Ég hlakka mikið til að hitta ykkur allar í sumar. Ég panta fjölskyldu-útilegu, er það ekki hægt?

Knús og kossar til ykkar allra, Edda og co.

3 Comments:

Blogger Begga said...

Það er engin spurning að við förum í eina útilegu eða svo jafnvel fleiri.

12:59 f.h.

 
Blogger herdist said...

Hlakka líka til að sjá þig og þína Edda mín, og við reynum svo sannarlega að fara í eina útilegu.
sjáumst!

10:56 f.h.

 
Blogger herdist said...

Hlakka líka til að sjá þig og þína Edda mín, og við reynum svo sannarlega að fara í eina útilegu.
sjáumst!

10:56 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home